Jón Sigurðsson GK 62

2275. Jón Sigurðsson GK 62 ex Kings Cross FR 380. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1997. Hér liggur uppsjávarveiðiskipið Jón Sigurðsson GK 62, við bryggju á Akureyri árið 1997 en þarna var sennilega búið að selja hann úr landi. Amk. var málað yfir GK 62 rétt eftir að myndin var tekin. Haukur Sigtryggur sendi miða: 2275....Jón Sigurðsson … Halda áfram að lesa Jón Sigurðsson GK 62

Vörðufell GK 205

1631. Vörðufell GK 205 ex Sveinbjörg ÁR 317. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vörðufell GK 205 frá Grindavík kemur hér til Þorlákshafnar um árið en þetta nafn bar báturinn frá árunum 1989-1997. Báturinn hét upphaflega Fálkinn NS 325 og var smíðaður 1982 í Bátalóni fyrir aðila á Bakkafirði. Báturinn, sem er 30 brl. að stærð, var seldur … Halda áfram að lesa Vörðufell GK 205

Silver Spirit á Skjálfanda

IMO 9437866. Silver Spirit. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðskipið Silver Spirit kom inn á Skjálfanda í morgun og lagðist við akkeri framundan Húsavíkurhöfða og farþegar þess fluttir í land á léttbátum skipsins. Skipið, sem var smíðað í Ancona á Ítalíu árið 2008, er 211 metrar að lengd, 27 metra breitt og mælist 36.009 GT að … Halda áfram að lesa Silver Spirit á Skjálfanda

NG Explorer kom í kvöld

IMO 8019356. National Geographic Explorer siglir inn Skjálfanda í kvöld. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Farþegaskipið National Geographic Explorer kom til Húsavíkur í kvöldsólinni sem á vel við þar sem fyrsta nafn skipsins var Midnatsol. Skipið var smíðað árið 1982 í Ulstein Verft AS í Noregi og bar nafnið Midnatsol til ársins 2003 er það varð Midnatsol … Halda áfram að lesa NG Explorer kom í kvöld

Wilson Clyde kom í dag

IMO 9178458. Wilson Clyde ex Admiral Sun. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Clyde kom til Húsavíkur nú undir kveld og það ekki í fyrsta skipti. Skipið, sem er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka, var smíðað í Slóvakíu árið 1998 og hét upphaflega og til októbermánaðar 2001 Dutch Trader. Síðan Admiral Sun til haustsins … Halda áfram að lesa Wilson Clyde kom í dag

Azamara Quest á Skjálfanda

 IMO 9210218. Azamara Quest ex Blue Moon. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Farþegaskipið Azamara Quest liggur við akkeri, eða ankeri eins og sumir segja, framundan Húsavíkurhöfða í dag og farþegar þess fluttir í land á léttbátum skipsins. Azamara Quest var smíða í Frakklandi árið 2000 og hét fyrstu þrjú árin R Seven og næstu þrjú árin … Halda áfram að lesa Azamara Quest á Skjálfanda