Jóna Eðvalds

2618. Jóna Eðvalds SF 200 ex Krossey SF 20. Ljósmynd  Sigurður Davíðsson 2024. Jóna Eðvalds SF 200 kemur hér að landi á Hornafirði sl. laugardag með um 600 tonna makrílfarm. Á heimasíðu Skinneyjar-Þinganess segir: Jóna Eðvalds var smíðuð hjá Flekkefjord skipasmíðastöðinni í Noregi árið 1975.  Skipið hét áður Birkeland, Björg Jónsdóttir og Krossey. Jóna fór … Halda áfram að lesa Jóna Eðvalds

Siggi Þórðar

1445. Siggi Þórðar GK 197 ex Skrúður RE 445. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Siggi Þórðar GK 197 er hér í Húsavíkurslipp árið 2013 en báturinn hét upphaflega Fanney ÞH 130. Fanney var smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri árið 1976 fyrir Húsvíkinga en þaðan var báturinn gerður út til ársins 1997.  Sölkusiglingar ehf. keyptu bátinn aftur til … Halda áfram að lesa Siggi Þórðar

Knörrinn

306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hann er glæsilegur Knörrinn sem hér leggur upp í hvalaskoðunarferð á Skjálfanda í vikunni. Hér má finna sögu bátsins sem Norðursigling hefur gert út til hvalaskoðunar frá árinu 1995. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Knörrinn

Við Húsavíkurhöfn sumarið 2008

1357. Níels Jónsson EA 106 ofl. bátar í Húsavíkurhöfn 30. júlí 2008. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þessi mynd var tekin 30. júlí sumarið 2008 og sýnir m.a Níels Jónsson EA 106 frá Hauganesi ásamt fleiri bátum. Svona fljótt á litið eru þrír þeirra ennþá hér en það eru Fram, Sævaldur og Lundey. Með því að smella … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn sumarið 2008

Vancouverborg kom í kvöld

IMO 9213741. Vancouverborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Vancouverborg kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Bökugarði. Skipið, sem kom með hráefnisfarm til PCC á Bakka, siglir undir hollenskum fána með heimahöfn í Delfzijl. Vancouverborg var smíðað í Hollandi árið 2001 og er 6.361 GT að tærð. Lengdin er 132 metrar og breiddin … Halda áfram að lesa Vancouverborg kom í kvöld

Tómas Þorvaldsson landaði í Grindavík í gær

2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex  ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Það var líf og fjör við Grindavíkurhöfn í gær en frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 kom þar inn um morguninn til löndunar. Jón Steinar tók þessar myndir en afli togarans var um 1009 tonn upp úr sjó eftir 40 daga veiðiferð. … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson landaði í Grindavík í gær

Rotterdam á Skjálfanda

IMO 9837470. Rotterdam á Skjálfanda með Lundey í baksýn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Farþegaskipið Rotterdam lá við akkeri framundan Húsavík í dag en þetta er stærsta skipið sem komið hefur hingað það sem af er sumri. Rotterdam er 299,79 metrar að lengd, breidd þess er 35 metrar og það mælist 99,935 GT að stærð. Skipið … Halda áfram að lesa Rotterdam á Skjálfanda

NG Endurance kom í kvöld

IMO:9842554. National Geographic Endurance. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Farþegaskipið National Geographic Endurance kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Bökugarði. NG Endurance er 124,35 metra langt og 23,6 metra breitt og mælist 12,786 GT að stærð. Eigandi NG Endurance er skipafélagið Lindblad Expeditions sem á einnig systurskipið National Geographic Resolution en þau voru smíðuð … Halda áfram að lesa NG Endurance kom í kvöld