Kristinn ÞH 163

7143. Kristinn ÞH 163. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Netabáturinn Kristinn ÞH 163 frá Raufarhöfn lætur hér úr höfn á Húsavík á marsmánuði árið 2003. Báturinn var smíðaður á Skagaströnd árið 1990. Kristinn var seldur í Skagafjörðinn árið 2005 og fékk þá nafnið Hafey SK 10 með heimahöfn á Sauðárkróki. Það nafn ber hann enn þann … Halda áfram að lesa Kristinn ÞH 163

Varðskipið Týr á Skjálfanda

1421. V/S Týr á Skjálfandaflóa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2013. Varðskipið Týr er hér á Skjálfanda en myndin var tekin haustið 2013 þegar skipið kom til Húsavíkur. Týr var smíðaður í Danmörku og kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Reykjavík sumarið 1975. Hann var í þjónustu LG til ársins 2021 en Týr kom úr sinni … Halda áfram að lesa Varðskipið Týr á Skjálfanda

Sturla seld til Grundarfjarðar

2444. Sturla GK 12 ex ex Smáey VE 444. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Fram kemur á vef Skessuhorns í dag að fiskvinnslufyrirtækið Guðmundur Runólfsson hf í Grundarfirði hafi fest kaup á Sturlu GK 12. Þar segir jafnframt Sturla, sem mun leysa Hring SH 153 af hólmi, farir í slipp eftir helgina og eru kaupin gerð með … Halda áfram að lesa Sturla seld til Grundarfjarðar

Bjarni Sveinsson ÞH 322

1508. Bjarni Sveinsson ÞH 322 ex Björg Jónsdóttir ÞH 321. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Bjarni Sveinsson ÞH 322 hét upphaflega Óskar Magnússon AK 177 og var skipið smíðað í Slippstöðinni á Akureyri árið 1978. Þegar Langanes hf. keypti skipið frá Akranesi árið 1996 bar það nafnið Höfðavík AK 200 en fékk nafnið Björg Jónsdóttir ÞH 321. … Halda áfram að lesa Bjarni Sveinsson ÞH 322

Pia Glanz verður Hildur SH 777

IMO: 9826809. Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Magnús Jónsson 2024. Í morgun kom til Hafn­ar­fjarðar nýr bátur sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku. Bát­ur­inn, sem ber nafnið Pia Glanz, mun fá nafnið Hildur SH 777 og kem­ur í stað Gunn­ars Bjarna­son­ar SH sem seld­ur hefur verið til FISK Sea­food á Sauðár­króki. Báturinn var smíðaður í … Halda áfram að lesa Pia Glanz verður Hildur SH 777

Margrét EA 710

2730. Margrét EA 710 ex Serene LK 297. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Margrét EA 710 liggur hér við bryggju á Akureyri þann24. október árið 2006. Samherji hf. hafði fyrr um árið keypt skipið frá Hjaltlandseyjum þar sem það bar nafnið Serene LK 297. Árið 2010 keypti Síldarvinnslan hf. Margrétina og nefndi Beiti NK 123. Síldarvinnslan … Halda áfram að lesa Margrét EA 710

Bjössi Sör og Haukur á Skjálfanda

1417. Bjössi Sör - 1292. Haukur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2011. Hér kemur mynd frá siglingahátíðinni Sail Húsavík sem haldin var sumarið 2011. Bjössi Sör á landleið úr hvalaskoðun en Haukur tók þátt í siglingakeppni seglskipa. Það sést í stefni dönsku skonnortunnar Activ sem einnig tók þátt í keppninni. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Bjössi Sör og Haukur á Skjálfanda