Sigrún Björk ÞH 100 kom til Húsavíkur í kvöld

7882. Sigrún Björk ÞH 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Nýr bátur kom til Húsavíkur í kvöld þegar Sigrún Björk ÞH 100 kom siglandi frá Akureyri en þangað var bátnum ekið í dag.

Sigrún Björk er Sómi 990 sem Víkingbátar á Esjumelum á Kjalarnesi smíðuðu fyrir Doddu ehf. en að því fyrirtæki standa hjónin Haukur Eiðsson skipstjóri og Unnur Sigurðardóttir.

Báturinn, sem verður gerður út til handfæraveiða, er 9,9 metrar að lengd og mælist 7,93 brl. að stærð.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd