Bjarni Gíslason SF 90

1324. Bjarni Gíslason SF 90 ex Ottó Wathne NS 90. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Ottó Wathne NS 90 var seldur til Hornafjarðar árið 1981 þar sem hann fékk nafnið Bjarni Gíslason SF 90. Báturinn var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1973 og er 101 brl. að stærð. Síðasta nafn bátsins á íslenskri skipaskrá var Halla … Halda áfram að lesa Bjarni Gíslason SF 90

Veiga

2440. Veiga ex Óli Bjarnason EA 279. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Veiga hét upphaflega Guðfinna VE 24 og var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2000. Árið 2006 fékk báturinn nafnið Olga ÁR 249 með heimahöfn í Þorlákshöfn. Ári síðar var báturinn kominn norður í Grímsey og fékk nafnið Óli Bjarnason EA 279. Það … Halda áfram að lesa Veiga

Hugborg SH 87

1282. Hugborg SH 87 ex Haffari RE 126. Ljósmynd Alfons Finnsson. Á þessari mynd frá Fonsa eru kallarnir á Hugborginni SH 87 á dragnótaveiðum við Snæfellssnes. Báturinn, sem var 29 brl. að stærð, hét upphaflega Haffari RE 126 og var smíðaður árið 1972 hjá Trésmíðaverkstæði Austurlands hf. á Fáskrúðsfirði. Árið 1973 var báturinn seldur til … Halda áfram að lesa Hugborg SH 87

Sigrún GK 380

1642. Sigrún GK 380 ex Stapatindur SH 17. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigrún GK 380 hét upphaflega Laxdal NS 110 og var með heimahöfn á Seyðisfirði. Báturinn var smíðaður árið 1983 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd. Hann mælist tæp 19 BT í dag. Árið 1986 var báturinn seldur frá Seyðisfirði og fékk nafnið Ásberg … Halda áfram að lesa Sigrún GK 380

Brimir ÞH 10

2155. Brimir ÞH 10 ex Sléttunúpur ÞH 273. 383. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Brimir ÞH 10 var 34,75 metra rækjufrystitogari smíðaður í Danmörku 1979 búinn900 hestafla Grenaa aðalvél.  Togarinn var smíðaður fyrir Grænlendinga og hét upphaflega hét Nataarnaq og síðar Niisa. Árið 1991 var togarinn keyptur til Íslands og kom til Ísafjarðar á jóladag það ár. Hann fékk nafnið … Halda áfram að lesa Brimir ÞH 10

Þrjú fyrrum íslensk skip í Þórshöfn

Fiskiskip við bryggju í Þórshöfn. Ljósmynd Aðalsteinn Árni Baldursson 2024. Á þessari mynd Aðalsteins Árna Baldurssonar síðan um síðustu helgi gefur að líta fiskiskip við bryggju í Þórshöfn í Færeyjum. Þrjú þessara skipa hafa verið í íslenska flotanum og þar af tvö smíðuð fyrir Íslendinga. Hægra megin við bryggjuna er Vestmenningur sem áður hét Margrét … Halda áfram að lesa Þrjú fyrrum íslensk skip í Þórshöfn