
Veiga hét upphaflega Guðfinna VE 24 og var smíðuð í Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2000.
Árið 2006 fékk báturinn nafnið Olga ÁR 249 með heimahöfn í Þorlákshöfn. Ári síðar var báturinn kominn norður í Grímsey og fékk nafnið Óli Bjarnason EA 279.
Það var svo árið 2008 sem báturinn var keyptur til Húsavíkur þar sem hann fékk nafnið Veiga sem hann bar næstu fjögur árin.
Frá árinu 2012 hefur báturinn heitið Abba ÓF 5 með heimahöfn á Ólafsfirði.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution