Múlafoss - 2190.Eyborg EA 59. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Múlafoss og Eyborgina úr Hrísey við hafnargarðinn á Húsavík sem kallaður var en heitir Norðurgarður. Myndin var tekin 1994 eða 1995 en Eyborg var á úthafsrækju og rótfiskaði undir skipsstjórn Eiríks Sigurðssonar. Ef ég man rétt. Með því að smella á myndina er … Halda áfram að lesa Múlafoss og Eyborg
Month: mars 2024
Bjarni Herjólfsson ÁR 200
1472. Bjarni Herjólfsson ÁR 200. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Bjarni Herjólfsson Ár 200 er hér á veiðislóð um árið en myndina tók Jón Páll Ásgeirsson. Togatinn, sem hafði heimahöfn á Stokkseyri var smíðaður í Póllandi árið 1977. Í 8. tbl. Ægis það ár sagði m.a um komu skipsins: 8. marz sl. kom skuttogarinn Bjarni Herjólfsson … Halda áfram að lesa Bjarni Herjólfsson ÁR 200
Hagland Progress kom með salt til Helguvíkur
IMO 9936343. Hagland Progress. LJósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Norska flutningaskipið Hagland Progress kom til Helguvíkur síðdegis í gær með 1500 tonn af salti á vegum Saltkaupa. Saltið fer til saltfiskvinnslu Vísis í Helguvík, en Vísir hefur komið sér upp vinnslu í Helguvík þar sem verkaður er saltfiskur á Portúgalsmarkað. Hagland Progress er nánast nýtt … Halda áfram að lesa Hagland Progress kom með salt til Helguvíkur
Björg VE 5
1935. Björg VE 5. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Björg VE. 5 er hér á toginu en hún var, smíðuð í Svíþjóð 1988 fyrir Gísla V. Einarsson útgerðarmann í Vestmannaeyjum. Eftir að fyrirtæki Gísla sameinaðist Vinnslustöðinni hf. sumarið 2002 var Björg VE 5 seld austur á Breiðdalsvík þar sem hún varð SU 3. Björg SU 3 var … Halda áfram að lesa Björg VE 5
Brimnes SH 717
1927. Brimnes SH 717. Ljósmynd Alfons Finnsson. Brimnes SH 717 var smíðað árið 1988 í Skipasmíðastöðinni Stálvík hf. fyrir Stefán Hjaltason í Ólafsvík. Báturinn mældist 9,9 brl. að stærð og var búinn línubeitningarvél. Báturinn sem nefnist Særós GK 325 í dag og er gerður út til siglinga með ferðamenn hét Brimnes til ársins 1994. Þá … Halda áfram að lesa Brimnes SH 717
Jón á Hofi ÁR 42
1645. Jón á Hofi ÁR 42 ex Þuríður Halldórsdóttir GK 94. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2024. Jón á Hofi ÁR 42 leggur hér upp í veiðiferð frá Þorlákshöfn en hann er gerður út af Ísfélaginu hf. í Vestmannaeyjum. Jón á Hofi ÁR 42 hét áður Þuríður Halldórsdóttir GK 94 en Rammi hf. í Fjalabyggð keypti skipið af … Halda áfram að lesa Jón á Hofi ÁR 42
Vaasaborg á Skjálfanda
IMO 9196242. Vaasaborg ex Normed Hamburg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Vaasaborg kom til Húsavíkur nú undir kvöld og lagðist að Bökugarðinum. Skipið er með hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka. Vaasaborg er 6,130 GT að stærð og var smíðað í Hollandi árið 2007. Lengd þess er 132 metrar og breiddin 15,85 metrar. Skipið … Halda áfram að lesa Vaasaborg á Skjálfanda
Arnþór EA 16
968. Arnþór EA 16 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Alfons Finnsson. Arnþór EA 16 frá Árskógssandi kemur hér að landi í Ólafsvík á vetrarvertíð. Upphaflega Krossanes SU 320 og var einn 18 báta sem smíðaðir voru í Boizenburg fyrir Íslendinga á árunum 1964-1968. Nöfnin sem báturinn bar á ferli sínum eru: Krossanes SU 320.Hilmir KE … Halda áfram að lesa Arnþór EA 16
Far GK 147
1294. Far GK 147 ex Sæljómi GK 150. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Far GK 147 var 11 brl. Bátalónsbátur sem hét upphaflega Sæljómi GK 150 og var smíðaður árið 1973. Sæljómi GK 150 var með heimahöfn í Sandgerði en þegar hann fékk nafnið Far GK 147 árið 1998 varð heimahöfnin Garður. Sæljómi hét reyndar Ljómi GK … Halda áfram að lesa Far GK 147
Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10
93. Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10 ex Stígandi VE 77. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10 er hér í Grindavíkurhöfn og menn eitthvað að vinna í trollinu. Þorbjörn hf. í Grindavík keypti bátinn frá Vestmannaeyjum árið 1979 og nefndi Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10. Hrafn Sveinbjarnarson II var yfirbyggður árið 1982 og fór … Halda áfram að lesa Hrafn Sveinbjarnarson II GK 10









