Kópnes ST 46

88. Kópnes ST 46 ex Geirfugl GK 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003.

Kópnes ST 46 kemur hér til hafnar á Húsavík þann 15. júlí árið 2003 þeirra erinda að láta gera við rækjutrollið.

Báturinn hét upphaflega Héðinn ÞH 57, smíðaður í Noregi fyrir Húsvíkinga árið 1960.

Héðinn ÞH 57 var seldur Fiskanesi h/f í Grindavík árið 1965 og fékk þá nafnið Geirfugl GK 88

Fyrrihluta árs 2001 var Geirfuglinn seldur til Hólmavíkur þar sem það fékk nafnið Kópnes ST 46 og var í eigu samnefnds fyrirtækis.

Kópnes var gert út á rækju og í byrjun september 2004 sökk báturinn 27 sjómílum nnv. af Skagatá eftir að óstöðvandi leki kom að honum.

Kaldbakur EA bjargaði áhöfninni, þrem mönnum.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

1 athugasemd á “Kópnes ST 46

Færðu inn athugasemd