1453. Gerpir NK 111 ex Jón Björn NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Gerpir NK 111 er hér í slipp á Akureyri en báturinn var seldur til Húsavíkur á dögunum. Það segir frá sölunni á vef Austurfrétta en seljandi er SÚN í Neskaupstað sem eignaðist bátinn árið 2003. Hann var í fyrstu nýttur til að … Halda áfram að lesa Gerpir NK 111 í slipp á Akureyri
Month: júní 2023
Hebridean Sky
IMO 8802882. Hebridean Sky ex Sea Explorer I. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Farþegaskipið Hebridean Sky kom til Húsavíkur snemma í morgun og lagðist að Þvergarðinum. Skipið, sem er í eigu Noble Caledonia, var smíðað árið 1991 í skipasmíðastöðinni Nuovi Cantieri Apuania á Ítalíu. Það er svokallað leiðangursskip og tekur 120 farþega. Hebridean Sky er 4,200 … Halda áfram að lesa Hebridean Sky
Sigurvon EA
7343.Sigurvon EA ex Kópur BA 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Sigurvon EA hét upphaflega Særoði ST 51 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1992. Heimahöfn Særoðans var Hólmavík en árið 1993 fékk hann nafnið Ösp ST 22. Árið 2005 fékk báturinn nafnið Kópur BA 152 og heimahöfn hans Flatey á Breiðafirði. Samkvæmt vefnum … Halda áfram að lesa Sigurvon EA
Skemmtisigling Grindvíkinga
Skemmtisigling Grindvíkinga á Sjómannadaginn. Ljósmynd Jón Steinar 2023. Hefð er fyrir því í Grindavík að Sjómannafélag Grindavíkur og útgerðarmenn þar í bæ bjóði gestum og gangandi í skemmtisiglingu í tilefni af sjómannadeginum. Í ár bauðst gestum að sigla með Vísisbátunum Páli Jónssyni GK 7 og Sighvati GK 57 og samkvæmt ljósmyndaranum viðraði vel á mannskapinn … Halda áfram að lesa Skemmtisigling Grindvíkinga
Sextugur Húni II í skemmtisiglingu
108. Húni II EA 740 ex Húni II. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Hér kemur Húni II EA 740 úr einni af skemmtisiglingum Sjómannadagsins hann fór í þær nokkrar í dag. Sextugur unglingurinn en í þeirri fyrstu fór hann fyrir flota smábáta og hafnsögbátarnir voru með í för. Síðan fór hann amk. í tvígang í siglingu … Halda áfram að lesa Sextugur Húni II í skemmtisiglingu
Nói EA 611
5423. Nói EA 611 ex Lórenz EA 611. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Nói EA 611 var einn af mörgum bátum sem voru í samfloti með Húna II EA 740 í skemmtisiglingu um Akureyrarpoll í dag, Sjómannadag. Nói er 4 brl. súðbyrðingur smíðaður úr furu og eik. Smíðaár hans er 1974 og smíðastaður Akureyri. Upphaflega hét … Halda áfram að lesa Nói EA 611
Til hamingju með daginn sjómenn
2450. Hrönn ÞH 36. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Með þessari mynd sem sýnir Hrönn ÞH 36 í skemmtisiglingu á Skjálfanda árið 2001 sendi ég sjómönnum og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir í tilefni Sjómannadagsins. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Til hamingju með daginn sjómenn
Landað úr Jökli
2991. Jökull ÞH 299 ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Jökull ÞH 299 kom til löndunar á Húsavík í morgun en hann hefur verið að veiða grálúðu í net að undanförnu. Aflinn var um 50 tonn eftir fremur stutta veiðiferð. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd … Halda áfram að lesa Landað úr Jökli
Sextugur Knörrinn kemur að
306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Körrinn er byrjaður siglingar með ferðamenn þetta árið en myndin var tekin í dag þegar hann kom úr hvalaskoðunarferð á Skjálfanda. Þann 9. mars sl. voru 60 ár síðan báturinn var sjósettur hjá Slippstöðinni á Akureyri en hann hét upphaflega Auðunn EA 157. Hann var smíðaður … Halda áfram að lesa Sextugur Knörrinn kemur að
Seaborn Ovation á Skjálfanda
IMO 9764958. Seaborn Ovation . Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Skemmtiferðaskipið Seaburn Ovation kom snemma í morgun inn á Skjálfanda og lagðist við ankeri skammt undan Húsavík þangað sem farþegar skipsins voru ferjaðir með skipsbátum. Skipið, sem var smíðað árið 2018 í Genóa á Ítalíu, hélt síðan áfram ferð sinni síðdegis. Seaborn Ovation er 41,865 GT … Halda áfram að lesa Seaborn Ovation á Skjálfanda









