Ziltborg við Bökugarðinn

IMO 9224142. Ziltborg við Bökugarðin. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022.

Flutningaskipið Ziltborg kom til Húsavíkur í gærkveldi þegar norðurljósin böðuðu Skjálfandaflóa með litadýrð sinni.

Skipið lagðist að Bökugarðinum hvar skipað verður upp hráefnisfarmi til kísilvers PCC á Bakka.

Zijlborg siglir undir hollenskum flaggi með heimahöfn í Delfzijl.

Skipið var smíðað í Hollandi árið 2000 og mælist 4,938 GT að stærð. Lengd þess er 118 metrar og breiddin 14 metrar.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd