Albert GK 31

1046. Albert Gk 31 ex Birtingur NK 119. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1982. Albert GK 31 var mikið aflaskip og hér er hann á vetrarvertíðinni 1982. Hreiðar Olgeirsson tók myndina en þá var Kristbjörg ÞH 44 að róa frá Þorlákshöfn. Báturinn hét upphaflega Birtingur NK 119 og smíðaður í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrik Verksted A/S í … Halda áfram að lesa Albert GK 31

Víðir Trausti EA 517

1178. Víðir Trausti EA 517 ex Víðir Trausti SU 517. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Víðir Trausti EA 517 er hér á siglingu á Eyjafirði um árið eftir breytingar í Slippstöðinni. Þær fólust m.a í brúarskiptum auk þess sem byggt var yfir hann að framan. Áður var búið að lengja bátinn sem smíðaður var á Seyðisfirði 1971. Það … Halda áfram að lesa Víðir Trausti EA 517

Björgúlfur EA 312

2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Björgúlfur EA 312 liggur nú við Slippkantinn á Akureyri prýddur jólaljósum. Björgúlfur var smíðaður í Tyrklandi árið 2017 og kom til heimahafnar á Dalvík 1. júní það ár. Björgúlfur er einn fjögurra togara sem smíðaður er eftir sömu teikningu fyrir íslenskar útgerðir í Tyrklandi. Kaldbakur EA kom … Halda áfram að lesa Björgúlfur EA 312

Bliki EA 12

162. Bliki EA 12 ex Hringur GK 18. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Bliki EA 12 er hér á netaveiðum úti fyrir Norðurlandi snemma á níunda áratug síðustu aldar. Bliki EA 12 hét upphaflega Ólafur Tryggvason SF 60 og var smíðaður í Noregi 1960 fyrir Tryggva Sigjónsson h/f  á Hornafirði. 1976 er báturinn seldur til Hafnarfjarðar þar sem hann fær … Halda áfram að lesa Bliki EA 12

Ný Cleopatra til Þrándheims

Vigrunn TR-4-F. Ljósmynd Trefjar.is 2018. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afgreiddi nú á dögunum nýjan Cleopatra bát til Frøya sem er eyja rétt fyrir utan Þrándheim í Noregi. Kaupendur bátsins eru bræðurnir Andre og Karl Vikan sem jafnframt verða skipverjar á bátnum. Báturinn, sem hefur hlotið nafnið Vigrunn, mælist 11 brúttótonn að stærð. Vigrunn er af … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra til Þrándheims

Dagfari ÞH 70 á síldveiðum

1037. Dagfari ÞH 70. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Á þessari mynd sem er úr safni Hreiðars Olgeirssonar er síldarskipið Dagfari ÞH 70 að háfa síld úr nótinni. Hreiðar var skipverji á Dagfara sem var í eigu bræðranna Stefáns og Þórs Péturssona en skipstjóri var Sigurður Sigurðsson. Dagfari ÞH 70 var smíðaður 1967 í Boizenburg í Þýskalandi fyrir … Halda áfram að lesa Dagfari ÞH 70 á síldveiðum

Hlíf GK 250

663. Hlíf Gk 250 ex Hlíf ÞH 80. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hlíf GK 250 hét upphaflega Lómur ÞH 80 og var smíðaður af Ernst Pettersen á Seyðisfirði 1960. Eigandi hans var Sveinbjörn Jóhannsson Þórshöfn á Langanesi. Lómur var 7. brl. að stærð, smíðaður úr eik og furu. Báturinn var seldur Tryggva Óskarssyni á Þórshöfn árið … Halda áfram að lesa Hlíf GK 250