399. Kári GK 146 ex Örninn KE 127. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Kári GK 146 var smíðaður úr eik í Halmstad í Svíþjóð árið 1954 og mældist 39 brl. að stærð. Hann hét upphaflega Sigurfari SF 58 frá Hornafirði, síðar Farsæll SH 30 og Örninn KE 127 áður en hann fékk Káranafnið sem hann bar í … Halda áfram að lesa Kári GK 146
Year: 2018
Súlan EA 300
Súlan EA 300. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Súlan EA 300 liggur hér ljósum prýdd við bryggju í Fiskihöfninni á Akureyri um árið. Hjalteyrin EA 310 liggur inann við Súluna en bæði þessi skip eru horfin af íslenskri skipaskrá. Með því að smella á mydnina er hægt að skoða hana í stærri upplausn.
Sigurfari GK 138
Sigurfari GK 138 ex Sigurfari VE 138. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Dragnótabáturinn Sigurfari GK 138 kemur að landi í Grindavík á vetrarvertíðinni árið 2008. Sigurfari var áður VE 138 en hét Glomfjord þegar Vestmannaeyingarnir festu kaup á honum frá Svíþjóð árið 1986. Báturinn var smíðaður í Strandby Skibsværft A/S, Strandby í Danmörku árið 1984, og … Halda áfram að lesa Sigurfari GK 138
Freyr ÞH 1
11. Freyr ÞH 1 ex Freyr GK 157. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Freyr ÞH 1 siglir hér út Skjálfandaflóa eftir löndun á Húsavík en hann var í eigu Vísis h/f í Grindavík. Upphaflega Arnfirðingur RE 212 smíðaður í Noregi 1963 fyrir Arnarvík h/f í Grindavík. Hét síðar Sandafell, Freyr og að lokum Siggi Þorsteins en hann … Halda áfram að lesa Freyr ÞH 1
Löndun í Sandgerðisbót
1542. Finnur EA 245 ex Andri ÓF. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Átti leið um Sandgerðisbótina á Akureyri í upphafi vikunnar og þar var verið að landa úr netabátnum Finni EA 245. Jón Sævar Grétarsson rær á Finni með dóttursyni sínum og voru þeir með eina trossu í sjó. Þeir höfðu dregið trossuna á sunnudeginum og … Halda áfram að lesa Löndun í Sandgerðisbót
Wilson North
Wilson North við Bökugarðinn. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Wilson North liggur við Bökugarðinn í þessum skrifuðu orðum og losar hráefnisfarm til PCC á Bakka. Skipið er 123 metrar á lengd og 16 metra breitt. Mælist 6,118 GT að stærð. Wilson North var smíðað árið 2010 og siglir undir Maltnesku flaggi með heimahöfn í Walletta. Með … Halda áfram að lesa Wilson North
Sigurborg SH 12
1019. Sigurborg SH 12 ex Sigurborg HU 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Sigurborg SH 12 sem hér sést á á siglingu til Húsavíkur hét upphaflega Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 frá Neskaupsstað, smíðaður í Hommelvik í Noregi 1966. Sveinn Sveinbjörnsson NK 55 var smíðaður fyrir Múla hf. á Neskaupstað en 1978 kaupir Gunnar I. Hafsteinsson í … Halda áfram að lesa Sigurborg SH 12
Geirfugl GK 66
88. Geirfugl GK 66 ex Héðinn ÞH 57. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geirfugl GK 88 kemur hér til hafnar í Grindavík en þaðan var þessi bátur lengst af gerður út. Smíðaður fyrir Húsvíkinga árið 1960 og í Alþýðublaðinu þann 28. júlí 1960 sagði svo frá komu Héðins til heimahafnar á Húsavík í fyrsta skipti: Síðdegis í … Halda áfram að lesa Geirfugl GK 66
Torita M-123-A
LHAH. Torita M-123-A ex Torita 1. Ljósmynd Jón Steinar. Torita M-123-A heitir þessi þessi línuveiðari sem Jón Steinar myndaði við komu til Grindavíkur fyrir einhverjum misserum síðan. Torita hét upphaflega Geir og var smíðaður 1978 í Fiskarstrand í Noregi. Hann er 39 metra langur, 7 metra breiður og mælist 377 GT að stærð. Fyrri nöfn … Halda áfram að lesa Torita M-123-A
Arnar ÁR 55
234. Arnar ÁR 55 ex Arnar HU 21. Ljósmynd Pétur Helgi Pétursson 1985. Pétur Helgi Pétursson tók þessa mynd af Arnari ÁR 55 á Breiðafirði á vetrarvertíð 1985. Arnar var upphaflega RE 21, smíðaður í Harstad í Noregi árið 1964 fyrir Búðarklett h/f í Reykjavík. Seldur 1969 Skagstrendingi h/f á Skagaströnd þar sem hann varð … Halda áfram að lesa Arnar ÁR 55









