6311. Hulda EA 621 ex Hulda EA 628. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Hulda EA 621 kemur hér að landi á Dalvík í ágústmánuði árið 2009 en hennar heimahöfn er Hauganes. Hulda hét upphaflega Fengur ÞH 207 frá Grenivík og var smíðaður hjá Skel hf. árið 1982. Það var árið 1987 sem báturinn fór yfir fjörðinn … Halda áfram að lesa Hulda EA 621
Óli Gísla GK 112
2714. Óli Gísla GK 112. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Óli Gísla GK 112 var smíðaður fyrir Sjávarmál ehf. í Sandgerði hjá Seiglu í Reykjavík árið 2006. Báturinn var HU 212 á árunum 2012-2014 en Vísir hf. í Grindavík keypti Sjávarmál ehf. árið 2018 og gaf bátnum nafnið Sævík GK 757. Árið 2022 var Sævík GK … Halda áfram að lesa Óli Gísla GK 112
Öxarnúpur ÞH 162
1538. Öxarnúpur ÞH 162 ex Eldhamar II GK 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Öxarnúpur ÞH 162 frá Raufarhöfn leggur hér úr höfn á Húsavík eftir slipp um árið en hann var í eigu Jökulls hf. á árunum 1992 til 2004. Öxarnúpur hét upphaflega Tjaldur SU 115 og var smíðaður árið 1979 hjá Trésmíðaverkstæði Austurlands hf. á Fáskrúðsfirð. Báturinn, … Halda áfram að lesa Öxarnúpur ÞH 162
Jón Gunnlaugs ÁR 444
1204. Jón Gunnlaugs ÁR 444 ex Jón Gunnlaugs GK 444. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Jón Gunnlaugs ÁR 444 kemur hér til hafnar á Húsavík þann 30. nóvember árið 2012, sennilega verið á rækju. Báturinn var smíðaður hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík árið 1972 fyrir Miðnes h/f í Sandgerði. Jón Gunnlaugs, sem var 104 brl. að stærð, … Halda áfram að lesa Jón Gunnlaugs ÁR 444
Siggi Arnfjörð SH 247
7498. Siggi Arnfjörð SH 247 ex Lára SH 237. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025. Siggi Arnfjörð SH 247 hét upphaflega Vík SH 13 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2001. Báturinn var smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Kríli ehf. Grundarfirði en árið 2002 var báturinn seldur norður í land og fékk nafnið Sigurveig EA 527 með … Halda áfram að lesa Siggi Arnfjörð SH 247
Harðbakur EA 303
1412. Harðbakur EA 303. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Harðbakur EA 303 kemur hér upp að slippkantinum á Akureyri um árið og kallarnir klárir með endana. Togarinn var smíðaður í San Juan skammt frá San Sebastian á Norður-Spáni fyrir Útgerðarfélag Akureringa h/f. Harðbakur, sem var síðastur Spánartogaranna sex af stærri gerðinni, kom til heimahafnar á Akureyri þann … Halda áfram að lesa Harðbakur EA 303
Björn Jónsson ÞH 345
2390. Björn Jónsson ÞH 345 ex Jói Berg GK 33. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Björn Jónsson ÞH 345 hét upphaflega Árni á Teigi GK 1 og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 2000. Árið 2003 fékk báturinn nafnið Jói Berg GK 33 og í upphafi árs 2007 fær hann nafnið Björn Jónsson ÞH 345. … Halda áfram að lesa Björn Jónsson ÞH 345
Núpur BA 69
2159. Núpur BA 69 ex Örvar SH 777. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025. Línuskipið Núpur BA 69 frá Patreksfirði er hér á siglingu en það er Oddi hf. sem gerir það út. Núpur BA 69 hét áður Örvar SH 777 frá Hellissandi en Oddi hf. keypti hann árið 2023. Upphaflega hét skipið Tjaldur II SH 370 og var … Halda áfram að lesa Núpur BA 69
Jón Gunnlaugs GK 444
1204. Jón Gunnlaugs GK 444. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jón Gunnlaugs GK 444 var smíðaður hjá Stálsmiðjunni í Reykjavík árið 1972 fyrir Miðnes h/f í Sandgerði. Báturinn, sem var 104 brl. að stærð, var gerður út frá Sandgerði allt til þess að hann var seldur til Þorlákshafnar árið 2004. Báturinn var yfirbyggður árið 1988. Í Þorlákshöfn … Halda áfram að lesa Jón Gunnlaugs GK 444
Geir Goði GK 220
242. Geir Goði GK 220 ex Sæunn GK 220. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Geir Goði GK 220 var smíðaður í Marstrands Mek. Verksted A/B í Marstrand í Svíþjóð árið 1963. Báturinn hét upphaflega Guðbjörg GK 220 en árið 1970 fékk hann nafnið Sæunn GK 220 og sex árum síðar nafnið Geir Goði GK 220. Geir Goði var … Halda áfram að lesa Geir Goði GK 220









