2061. Vaka SU 9. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vaka SU 9 frá Reyðarfirði kom eitt sinn til Húsavíkur og voru þessar myndir teknar við það tækifæri. Kannski kom hún þó oftar en þetta skipti, hvað veit ég, en mig minnir að erindið hafi verið eitthvað tengt veiðarfærum. Vaka SU 9 var í eigu Eskfirðings hf. á … Halda áfram að lesa Vaka SU 9
Flokkur: Togarar
Kaldbakur EA 1 fer vel af stað með nýtt vinnsludekk
2891. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Kaldbakur EA fór í sína fyrstu veiðiferð snemma í septembermánuði að aflokinni uppsetningu á nýjum og fullkomnum vinnslubúnaði frá Slippnum Akureyri. Búnaðurinn í vinnslunni hefur reynst vel að sögn Angantýs Arnars, annars tveggja skipstjóra á Kaldbaki EA en frá þessu segir á heimasíðu Slippsins. “Við erum mjög … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1 fer vel af stað með nýtt vinnsludekk
Klakkur ÍS 903 í slipp á Akureyri
1472. Klakkur ÍS 903 ex Ísborg II ÍS 260. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Ísafjarðartogarinn Klakkur ÍS 903, sem reyndar er skráður með heimahöfn á Flateyri, hefur verið í slipp á Akureyri að undanförnu. Tjaldtangi ehf. á Ísafirði er eigandi Klakks sem um stuttan tíma hét Ísborg II ÍS 260 en hét áður Klakkur SK 5, … Halda áfram að lesa Klakkur ÍS 903 í slipp á Akureyri
Runólfur SH 135
1408. Runólfur SH 135. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1986. Hér liggur skuttogarinn Runólfur SH 135 við bryggju á Grundarfirði sumarið 1986. Runólfur SH 135, sem var fyrsti skuttogarinn við Breiðafjörð, var smíðaður í Stálvík hf. í Garðabæ og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar á Grundarfirði snemma árs 1975. Togarinn, sem var 312 brl. að … Halda áfram að lesa Runólfur SH 135
Stefnir ÍS 28 á toginu
1451. Stefnir ÍS 28 ex Gyllir ÍS 261. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Skuttogarinn Stefnir ÍS 28 lenti fyrir linsunni hjá Hólmgeir Aaustfjörð á dögunum og nú fáum við að njóta myndanna. Stefmir ÍS 28 hét upphaflega Gyllir ÍS 261 og var smíðaður árið 1976 í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi fyrir … Halda áfram að lesa Stefnir ÍS 28 á toginu
Vigri á togslóðinni
2184. Vigri RE 71. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frystitogarinn Vigri RE 71 er hér að veiðum í sl. mánuði en myndina tók Hólmgeir Austfjörð skipverji á Ottó N Þorlákssyni VE 5. Vigri RE 71 var smíðaður fyrir Ögurvík hf. í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi árið 1992. Togarinn, sem er 1.217 … Halda áfram að lesa Vigri á togslóðinni
Sólberg ÓF 1 að veiðum
2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 er hér við ýsuveiðar fyrir vestan land á dögunum. Þessi glæsilegi frystitogari er hannaður af Skipsteknisk í Noregi en smíðaður fyrir Rammann hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar að lengd, 15,4 metrar á breidd og alls 3.720 brúttótonn. Með því að smella … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF 1 að veiðum
Baldvin Njálsson GK 400 á ýsuslóðinni
2182. Baldvin Njálsson GK 400 ex Rán HF 4. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019. Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 er hér á ýsuslóðinni vestan við land sl. sunnudag. Baldvin er nýkominn úr skveringu og óhætt að segja að nýja lúkkið lúkkar vel. Togarinn var smíðaður í Vigó á Spáni 1990 (1991 segir sum staðar) fyrir Norðmenn … Halda áfram að lesa Baldvin Njálsson GK 400 á ýsuslóðinni
Fleiri myndir af Tómasi Þorvaldssyni GK 10 koma til Grindavíkur
2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Jón Steinar var á ferðinni með drónann þegar frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Grindavík í gærmorgun. 2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Þetta er glæsilegt sem ber aldurinn … Halda áfram að lesa Fleiri myndir af Tómasi Þorvaldssyni GK 10 koma til Grindavíkur
Tómas Þorvaldsson GK 10 kom til heimahafnar í dag
2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 kom í fyrsta skipti í heimahöfn sína Grindavík kl. 9 í morgun. Þorbjörn hf. fékk skipið afhent í júní sl. eftir að hafa keypt það frá Grænlandi þar sem það bar nafnið Sisimiut GR6-500. Fram kom í … Halda áfram að lesa Tómas Þorvaldsson GK 10 kom til heimahafnar í dag









