Snorri Sturluson RE 219

1328. Snorri Sturluson RE 219. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Snorri Sturluson RE 219 var einn sex stóru Spán­ar­tog­ar­anna sem komu til lands­ins á ár­un­um 1973-1975.  Þeir voru smíðaðir í Astilleros Luzuriaga S.A. skipasmíðastöðinni í Pasajes de San Juan í Baskalandi. Bæjarútgerð Reykjavíkur, BÚR, fékk þrjá þeirra. Auk Snorra þá Bjarna Benediktsson RE 210 og Ingólf Arnarson … Halda áfram að lesa Snorri Sturluson RE 219

Þuríður Halldórsdóttir GK 94

1645. Þuríður Halldórsdóttir GK 94 ex Hafnarey SU 110. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Skuttogarinn Þuríður Halldórsdóttir GK 94 heldur hér í veiðiferð frá Grindavík vorið 2006. Upphaflega hét skipið Hafnarey SU 110 frá Breiðdalsvík og var eitt af raðsmíðaskipunum svokölluðu. Smíðað 1983 hjá Þorgeir & Ellert á Akranesi. Valdimar hf. í Vogum á Vatnsleysuströnd keypti … Halda áfram að lesa Þuríður Halldórsdóttir GK 94

Komið að lokum hjá Múlaberginu

1281. Múlaberg SI 22 ex Múlaberg ÓF 32. LJósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Eins og fram kom í fréttum í gær eru dagar Múlabergs SI 22 senn taldir eftir að bil­un kom upp í skip­inu og ekki talið svara kostnaði að gera við þennan hálfraraldar gamla Japanstogara. Togarinn hét upphaflega Ólafur Bekkur ÓF 2, hann var … Halda áfram að lesa Komið að lokum hjá Múlaberginu

Sólbakur EA 5

1212. Sólbakur EA 5 ex Bayard. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Togarinn Sólbakur EA 5 á toginu en hann var fyrsti skuttogari Útgerðarfélags Akureyringa h/f, kom til heimahafnar á Akureyri 8. febrúar 1972. Sólbakur var smíðaður í Gdynia í Póllandi fyrir franska útgerð og afhentur í árslok árið 1967. Hjá Frökkunum hét hann Bayard og heimahöfn … Halda áfram að lesa Sólbakur EA 5

Sléttbakur EA 304

1351. Sléttbakur EA 304 ex Stella Kristína. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sléttbakur EA 304 liggur hér fánum prýddur við brygggju á Akureyri og ef ég man rétt var þetta eftir að breytingum á honum lauk í Slippstöðinni árið 1987 Sléttbakur EA 304 hét áður Stella Kristína og var gerður út frá Færeyjum. Skipið var smíðað í … Halda áfram að lesa Sléttbakur EA 304

Kaldbakur EA 1

2981. Kaldbakur EA 1. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Kaldbakur EA 1, togari Útgerðarfélags Akureyringa, kom inn til löndunar í Hafnarfirði í gær og tók Jón Steinar þessar myndir þá. Kaldbakur var  fyrstur í röðinni af fjór­um syst­ur­skip­um sem smíðuð voru hjá Cem­re-skipa­smíðastöðinni í Tyrklandi. Hin eru Björgúlfur EA 312, Drangey SK 2 og Björg EA 7. … Halda áfram að lesa Kaldbakur EA 1