Friðfinnur ÍS 105

2710. Friðfinnur ÍS 105. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007. Friðfinnur ÍS 105 kemur hér að landi á Dalvík haustið 2007 en þangað hafði báturinn verið keyptur frá Flateyri. Báturinn var smíðaður hjá Trefjum og afhentur útgerðarfyrirtækinu Friðfinni ehf. í janúarmánuði árið 2006. Báturinn, sem er af gerðinni Cleopatra 38, var seldur til Dalvíkur árið 2007 þar … Halda áfram að lesa Friðfinnur ÍS 105

Hafdís ÞH 12

5434. Hafdís ÞH 12. Ljósmynd Sigurgeir Smári Harðarson. Ætla má að það sé um hálf öld síðan Geiri Harðar tók þessa mynd af Hafdísi ÞH 12 á Skjálfanda. Baldur Pálsson bátasmiður á Húsavík smíðaði Hafdísi ÞH 12 fyrir Jóstein Finnbogason árið 1951 og var hún sveinstykki Baldurs í bátasmíðinni. Hafdís var smíðuð úr furu og eik, … Halda áfram að lesa Hafdís ÞH 12

Kvistur KÓ 30

7395. Kvistur KÓ 30 ex Kvistur ÍS 131. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Kvistur KÓ 30 hét upphaflega Þengill ÞH 34 og átti heimahöfn á Húsavík. Smíðaður hjá Trefjum árið 1991. Árið 1995 fékk báturinn nafnið Gyða Jónsdóttir EA 208 með heimahöfn í Grímsey og sjö árum síðar var nafninu breytt í Gísli bátur EA 208. … Halda áfram að lesa Kvistur KÓ 30

Gunnar Guðmundsson RE 19

1227. Gunnar Guðmundsson RE 19 ex Þytur SU 89. Ljósmynd Vigfús Markússon. Á þessari mynd Vigfúsar Markússonar má sjá kallana á Gunnari Guðmundssyni RE 19 draga netin en þetta nafn bar báturinn árin 1977-1983. Báturinn hét upphaflega Þytur NS 22 og var smíðaður árið 1972 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd. Báturinn sem var tæplega … Halda áfram að lesa Gunnar Guðmundsson RE 19