1551. Hilmir SU 171. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hilmir SU 171 var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri og afhentur Hilmi hf. á Fáskrúðsfirði árið 1980. Hilmir var 642 brl. að stærð og lengd hans 56,48 metrar. Hilmir SU 171 var í íslenska flotanum til ársins 1993 en þá um haustið var hann seldur til Chile. Hilmir … Halda áfram að lesa Hilmir SU 171
Flokkur: Nóta- og togskip
Ísleifur farinn
2388. Ísleifur VE 63 ex Ingunn AK 150. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Ísleifur VE 63 lagði síðdegis í gær upp í siglingu frá Vestmannaeyjum til Danmerkur, nánar tiltekið Esbjerg, þar sem skipið fer í niðurrif. Ísleifur hét upphaflega Ingunn AK 150 og var smíðaður fyrir HB á Akranes í Chile árið 2000. Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum … Halda áfram að lesa Ísleifur farinn
Huginn VE 55
2411. Huginn VE 55. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Huginn VE 55 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum á dögunum en það er Vinnslustöðin sem gerir hann út. Um skipið skipið má lesa hér en það var smíðað í Chile árið 2001. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By … Halda áfram að lesa Huginn VE 55
Arnarnúpur ÞH 272
1556. Arnarnúpur ÞH 272 ex Drangur SH 511. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Arnarnúpur ÞH 272 heldur hér til veiða frá Húsavík en hann var gerður út af Jökli hf. á Raufarhöfn. Upphaflega Sölvi Bjarnason BA 65, smíðaður á Akranesi fyrir Tálkna hf. á Tálknafirði, afhentur í marsmánuði 1980. Sölvi Bjarnason, sem var 405 brl. að stærð, … Halda áfram að lesa Arnarnúpur ÞH 272
Seley ÞH 381
1076. Seley ÞH 381 ex Guðrún Þorkelsdóttir SU 211. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Seley ÞH 381 heldur hér til rækjuveiða sumarið 2004 en það var Íshaf hf.á Húsavík sem gerði hana út. Upphaflega hét skipið Helga Guðmundsdóttir BA 77 og var smíðuð í skipasmíðastöð Þorgeirs & Ellerts á Akranesi. Hún var smíðuð fyrir Vesturröst hf. … Halda áfram að lesa Seley ÞH 381
Súlan EA 300
1060. Súlan EA 300. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Súlan EA 300 siglir hér inn Eyjafjörð með heimahöfn sína Akureyri sem áfangastað. Súlan var 354 brl. að stærð, smíðuð í Fredrikstad í Noregi 1967 fyrir Leó Sigurðsson á Akureyri. Hún var lengd í Hollandi 1974 og mældist þá 393 brl. og yfirbyggt 1975 og mældist þá 391 brl. … Halda áfram að lesa Súlan EA 300
Jón Steingrímsson RE 7
973. Jón Steimgrímsson RE 7 ex Straumnes RE 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2006. Jón Steingrímsson RE 7 liggur hér í Dalvíkurhöfn í febrúarmánuði árið 2006. Þegar þarna var komið við sögu átti báturinn eftir um tvö ár á íslenskri skipaskrá en hann fór í pottinn árið 2008. Upphaflega hét báturinn Dagfari ÞH 40 og var … Halda áfram að lesa Jón Steingrímsson RE 7
Þrjú fyrrum íslensk skip í Þórshöfn
Fiskiskip við bryggju í Þórshöfn. Ljósmynd Aðalsteinn Árni Baldursson 2024. Á þessari mynd Aðalsteins Árna Baldurssonar síðan um síðustu helgi gefur að líta fiskiskip við bryggju í Þórshöfn í Færeyjum. Þrjú þessara skipa hafa verið í íslenska flotanum og þar af tvö smíðuð fyrir Íslendinga. Hægra megin við bryggjuna er Vestmenningur sem áður hét Margrét … Halda áfram að lesa Þrjú fyrrum íslensk skip í Þórshöfn
Heimaey í Helguvík
2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Jón Steinar tók þessar myndir af Heimaey VE 1 sem kom inn til Helguvíkur í morgun. Erindi hennar var að taka fiskifræðinga um borð en Heimaey er farin í loðnuleit vestur með landinu sem og norður í Húnaflóa. 2812. Heimaey VE 1. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson … Halda áfram að lesa Heimaey í Helguvík
Óskar Magnússon AK 177
1062. Óskar Magnússon AK 177. Ljósmynd úr einkasafni. Óskar Magnússon AK 177 var smíðaður í Stálvík árið 1967 fyrir Þórð Óskarsson hf. á Akranesi. Hér má lesa nánar um skipið sem frá árinu 1976 hefur ýmist borið nafnið Kap eða Kap II og gerð út frá Vestmannaeyjum. Með því að smella á myndina er hægt … Halda áfram að lesa Óskar Magnússon AK 177









