Sylvía leggur í ´ann

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbáturinn Sylvía leggur hér upp í hvalakoðunarferð á Skjálfanda síðdegis í dag. Sylvía, sem er í eigu Gentle Giants, var smíðuð í Bátasmiðjunni Vör hf. á Akureyri 1976 fyrir Grenvíkinga og hét upphaflega Sigrún ÞH 169. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Sylvía leggur í ´ann

Hólmasól

2922. Hólmasól. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbáturinn Hólmasól frá Akureyri kemur hér úr ferð út á Eyjafjörðinn í gær en það er Akureyri Whale Watching ehf. sem gerir hann út. Smíðaður hjá Brodrene Aa Eikefjord A/S í Noregi árið 1988 en keyptur hingað til lands 2016. Með því að smella á myndina er hægt að … Halda áfram að lesa Hólmasól

Garðar

260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Norðursiglingarbáturinn Garðar kemur hér úr hvalaskoðunarferð eftir hádegi í dag en renniblíða var á Skjálfandaflóa. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn … Halda áfram að lesa Garðar

Garðar og Náttfari

260. Garðar (fjær) og 993. Náttfari. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbátarnir Garðar og Náttfari mætast hér í hafnarmynninu á Húsavík en myndn var tekin í dag. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn … Halda áfram að lesa Garðar og Náttfari

Sylvía og Faldur

1468. Sylvía og 1267. Faldur. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Hvalaskoðunarbátar Gentle Giants í morgun, Sylvía að fara frá bryggju og Faldur klár í fyrstu ferð dagsins. Og ekki skemmir veðurblíðan fyrir maður minn. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view … Halda áfram að lesa Sylvía og Faldur

Konsúll kemur úr hvalaskoðun

2938. Konsúll. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Farþegabáturinn Konsúll kemur hér úr hvalaskoðun á Eyjafirði í gær undir öruggri skipstjórna Adda skólabróður. Konsúll var smíðaður árið 1985 en bættist í hvalaskoðunarflota Íslendinga vorið 2017 þegar SHB Hvalaskoðun ehf. keypti hann frá Noregi. Ambassador ehf. gerði hann út til hvalaskoðunar frá Akureyri en í dag er báturinn … Halda áfram að lesa Konsúll kemur úr hvalaskoðun

Ópal og Esja

Esja og Ópal koma til hafnar á Húsavík. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Seglskútan Esja og skonnortan Ópal koma hér til hafnar á Húsavík í síðustu viku en Ópal sigldi í samfloti við Esju frá Akureyri. Það er hópur kvenna sem kallar sig Seiglurnar siglir Esju í hringferð í kringum landið og létu þær úr höfn í Reykjavík 11. … Halda áfram að lesa Ópal og Esja

Líflegt við höfnina

Bátar mætast í höfninni á Húsavík í gær. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2021. Það var líflegt við höfnina á Húsavík í gær er strandveiðibátar komu úr róðri og hvalaskoðunarbátar komu og fóru. Hér mætast Laxinn ÞH 177 sem var að koma úr róðri og Amma Helga að leggja upp í siglingu með ferðamenn. Með því að … Halda áfram að lesa Líflegt við höfnina