Dagfari búinn í slipp

1470. Dagfari ex Salka. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Dagfari hefir verið í slipp á Húsavík að undanförni en fór niður um helgina svona nýskveraður og fínn. Það er Norðursigling á Húsavík sem gerir hann út en Dagfari hét áður Salka.  Báturinn hét upphaflega Hafsúlan RE 77 og var smíðaður í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. í Hafnarfirði árið … Halda áfram að lesa Dagfari búinn í slipp →

Sylvía komin heim

1468. Sylvía ex Björgvin ÍS 468. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hvalaskoðunarbáturinn Sylvía kom til heimahafnar á Húsavík í morgun eftir siglingu frá Stykkishólmi. Hún hefur verið í Skipavík sl. fimm mánuði þar sem auk venjulegs viðhalds var m.a skipt um aðalvél og vélarrúmið endurnýjað frá A-Ö. Það er Gentle Giants sem gerir Sylvíu út en … Halda áfram að lesa Sylvía komin heim →

Haldið út á flóann

1453. Moby Dick - 1417. Bjössi Sör. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér halda hvalaskoðunarbátarnir Moby Dick og Bjössi Sör út á Skjálfandaflóa í morgun en öll fyrirtækin sem gera út til hvalaskoðunarferðafrá Húsavík hafa hafið vertíð sína þetta árið. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking … Halda áfram að lesa Haldið út á flóann →

Náttfari leggur frá bryggju

993. Náttfari leggur upp í hvalaskoðunarferð. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norðursiglingarbáturinn Náttfari leggur hér upp í hvalaskoðunarferð út á Skjálfanda í gærmorgun en háhyrningar sýna sig í flóanum þessa dagana. Norðan við flotbryggjuna er Bjössi Sör sem fór einnig í ferð stuttu síðar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Náttfari leggur frá bryggju →

Moby Dick kominn úr slipp

1453. Moby Dick ex Gerpir NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kom til Húsavíkur nú undir kvöld en báturinn var í slipp á Akureyri. Þar var báturinn skveraður fyrir næstu vertíð sem hefst þann 1. apríl nk. en Sjóferðir Arnars ehf. keypti bátinn frá Norðfirði sl. sumar og hóf siglingar á Skjálfanda. … Halda áfram að lesa Moby Dick kominn úr slipp →

Hvalaskoðunarbátar

Hvalaskoðunarbátar á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hvalaskoðunarbátarnir Garðar og Náttfari koma hér til hafnar á Húsavík í dag eftir ferðir dagsins. Við bryggjuna liggur Fanney en allir bátarnir eru í eigu Norðursiglingar. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can … Halda áfram að lesa Hvalaskoðunarbátar →

Haukur

1292. Haukur ex Haukur ÍS 195. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Hér hvalaskoðunarbáturinn Haukur að leggja upp í hvalaskoðun á Skjálfanda undir stjórn Bjössa Sör. Myndin var tekin í ágústmánuði árið 2001 en um veturinn fór báturinn í gegnum breytingar og sumarið 2002 hóf hann siglingar sem tveggja mastra skonnorta. Haukur er 19 brl. að stærð, … Halda áfram að lesa Haukur →

Knörrinn

306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Það væsti ekki um Knörrinn í morgunblíðu dagsins við Húsavíkurhöfn. Þann 9. mars sl. voru 60 ár síðan báturinn var sjósettur hjá Slippstöðinni á Akureyri en hann hét upphaflega Auðunn EA 157. Hann var smíðaður fyrir þá Kristinn Jakobsson og Garðar Sigurpálsson, Hrísey og áttu þeir … Halda áfram að lesa Knörrinn →