Airisto kom til Húsavíkur í kvöld

IMO 9213727. Airisto siglir inn Skjálfanda í kvöldsólinni. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Finnska flutningaskipið Airisto kom til Húsavíkur í kvöld og lagðist að Bökugarðinum þar sem hráefnisfarmi fyrir kísilver PCC á Bakka verður skipað upp. Skipið var smíðað í Hollandi árið 2000 og hefur áður borið nöfnin Malte Rambow 2000-2003, Annalisa frá 2008-2013 og Ara … Halda áfram að lesa Airisto kom til Húsavíkur í kvöld →

Wilson Fedje kom með áburð

IMO 9491757. Wilson Fedje. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Fedje var á Húsavík í gær þar sem skipað var upp áburðarfarmi. Skipið siglir undir fána Barbados og er heimahöfn þess í Bridgetown. Winston Fedje, sem var smíðað í Kína árið 2012, 90 metrar að lengd, breidd þess er 15,2 metrar og það mælist 2,999 … Halda áfram að lesa Wilson Fedje kom með áburð →

Wilson Hirthsals

IMO 9240251. Wilson Hirthsals ex Tejo Alges. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Hirthsals kom til Húsavíkur í morgun en skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið siglir undir fána Barbados og er heimahöfn þess í Bridgetown. Winston Hirthsals var smíðað í Búlgaríu árið 2001 og bar áður nöfnin Parma og Tejo … Halda áfram að lesa Wilson Hirthsals →

Wilson Brest kom með salt

IMO 9126900. Wilson Brest ex Northen Lessnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Brest kom til Húsavíkur í kvöld með saltfarm fyrir GPG Seafood. Skipið var smíðað árið 1995 í Slóvakíu og siglir undir flaggi Barbados með heimahöfn í Bridgetown. Það er 87,9 metra langt, 12,8 metra breitt og mælist 2,446 GT að stærð. IMO … Halda áfram að lesa Wilson Brest kom með salt →

Hav Norlandia kom með áburð

IMO 9280706. Hav Norlandia ex Ostenau. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Færeyska flutningaskipið Hav Norlandia kom til Húsavíkur um miðjan daginn með áburðarfarm. Skipið var smíðað í Slóvakíu árið 2005 og hét áður Ostenau. Það er 87,85 metrar að lengd og breidd þess er 12,8 metrar. Það mælist 2,461 GT að stærð. Það siglir eins og … Halda áfram að lesa Hav Norlandia kom með áburð →

Treville við Norðurgarðinn

IMO 9815331. Treville. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér gefur að líta hollenska flutningaskipið Treville við Norðurgarðinn í morgun. Varðskipið Freyja kom með skipið í togi til Húsavíkur í gærkveldi en það varð vélarvana við Melrakkasléttu. Treville var smíðað árið 2018 í Kína og er 89.9 metra langt. Breidd þess er 14,8 metrar og það mælist … Halda áfram að lesa Treville við Norðurgarðinn →

Wilson Hanstholm

IMO 9119567. Wilson Hanstholm ex Tinsdal. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Hanstholm kom að bryggju á Húsavík nú undir kvöld eftir að hafa legið við stjóra framundan Húsavíkurhöfða síðan í gær. Skipið, sem er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka siglir undir fána Barbados og er heimahöfn þess í Bridgetown. Winston Hanstholm var … Halda áfram að lesa Wilson Hanstholm →

Edenborg kom í dag

IMO 9463449. Edenborg. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Edenborg kom til Húsavíkur í dag með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka. Skipið er 138 metrar að lengd, breidd þess er 16 metrar of það mælist 7,196 GT að stærð. Edenborg var smíðað hjá Wagenborg Shipping í Hollandi árið 2010 og er með heimahöfn í Delfzijl. … Halda áfram að lesa Edenborg kom í dag →