Maersk Lota undir krananum í Malaga

Maersk Lota undir krananum í Malaga. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2019. Flutningaskipið Maersk Lota var í höfní Malaga í upphafi vikunnar og þá var þessi mynd tekin. Skipið var smíðað árið 2012 og er 300 metrar að lengd, breidd þess er 45 metrar og það mælist 89,505 GT að stærð. Það siglir undir fána Singapore og … Halda áfram að lesa Maersk Lota undir krananum í Malaga

Key West í Grindavík

Key West við Miðgarðinn í Grindavíkurhöfn. Ljósmynd Jón Steinar 2019. Flutningaskipið Key West kom til Grindavíkur fyrir helgi með iðnaðarlýsi fyrir Lýsi hf. en lýsið er geymt í tönkum þeim sem sem áður tilheyrðu Fiskimjöli & Lýsi hf sem eyðilagðist í bruna árið 2005. Key West var smíðað árið 1992 og hét upphaflega Roland Essberger. … Halda áfram að lesa Key West í Grindavík

Wilson Calais kom til Húsavíkur með áburð

Wilson Calais ex Steffen Sibum. Ljósmynd Gaukur Hjartarson 2019. Flutningaskipið Wilson Calais kom til Húsvíkur í gærkveldi þar sem það mum losa áburð handa þingeyskum bændum á Norðurgarðinum. Skipið er 100 metra langt og 13 metra breitt, mælist 2,994 GT að stærð. Það var smíðað árið 2001 og siglir undir fána Barbadoseyja, heimahöfnin Bridgetown. Með … Halda áfram að lesa Wilson Calais kom til Húsavíkur með áburð

Arne kom til Húsavíkur í morgun

Arne ex Marneborg við komuna til Húsavíkur í morgun. Ljósmynd Gaukur Hjartarson. Flutningaskipið Arne kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm til PCC á Bakka en hann samanstóð af tjrádrumbum og kurli. Það var logn og fallegt um að líta við Skjálfanda þegar þetta 134 metra langa og 16 metra breiða kom að Bökugarðinum. Það … Halda áfram að lesa Arne kom til Húsavíkur í morgun

Nordanvik kom með sement til Helguvíkur

Nordanvik ex Tiger. Ljósmynd Elvar Jósefsson 2019. Sementsflutningaskipið Nordanvik kom til hafnar í Helguvík um hádegisbil í gær og tók Elvar Jósefsson þessar myndir þá. Það hefur verið að koma með sement frá Aalborg í Danmörku til sementsbyrgðarstöð Aalborg Portlands í Helguvík. Skipið var smíðað árið 2002 af Damen Shipyard í Galatí í Rúmeníu og … Halda áfram að lesa Nordanvik kom með sement til Helguvíkur

Victoriaborg á Húsavík

Victoraborg við Bökugarðinn. Ljósmynd Gaukur Hjartarsson 2019. Flutningaskipið Victoriaborg frá Hollandi kom upp að Bökugarðinum í gærmorgun eftir að Selfoss fór frá. Victoriaborg er með hráefnisfarm fyrir PCC á Bakka og hafði legið fyrir framan höfnina meðan Selfoss var losaður og lestaður. Victoriaborg, sem er með heimahöfn Delfzijl í Hollandi, var smíðað árið 2001 í … Halda áfram að lesa Victoriaborg á Húsavík

Wilson Alicante við Bökugarðinn

Wilson Alicante við Bökugarðinn í morgun. Ljósmynd Gaukur Hjartarson. Wilson Alicante var á Húsavík í dag og lá við Bökugarðinn þar sem það lestaði afurðir frá PCC á Bakka. Skipið var smíðað árið 2010 og er 2,451 GT að stærð, 88 metra langt of 12 metra breitt. Wilson Alicante siglur undir fána Möltu og heimahöfnin … Halda áfram að lesa Wilson Alicante við Bökugarðinn

Sti Poplar í Helguvík

Olíuskipið Sti Poplar í Helguvík. Ljósmyn Elvar Jósefsson 2019. Hér birtast myndir sem Elvar Jósefsson sendi síðunni af olíuskipinu Sti Poplar sem kom til Helguvíkur fyrir skömmu með flugvélaeldsneyti. Skipið losaði um 40 milljónir lítra í olíubirgðarstöðina í Helguvík, það kom aðfaranótt föstdagsins 22. mars og fór að morgni laugardags 23. mars. STI Poplar. Ljósmynd … Halda áfram að lesa Sti Poplar í Helguvík