Tomina VL-12-ØN. Ljósmynd Trefjar 2021. Jimmy Bjorøy útgerðarmaður í Bergen fékk á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 35 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Jimmy verður sjálfur skipstjóri á bátnum sem heitir Tomina VL-12-ØN og er 10.65 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn að stærð. Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C13 520hö tengd … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 35 makrílveiðibátur til Bergen
Flokkur: Erlend fiskiskip
Mark fyrir utan Grindavík
IMO:9690688. Mark ROS 777. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2021. Þýski frystitogarinn Mark kom upp að Grindavík í fyrrinótt, sennilega í þeim erindagjörðum setja menn í land. Jón Steinar tók meðfylgjandi mynd og sagði m.a á síðu sinni: Hann kom hér upp að landinu úr vestri og hélt svo hér austur með eftir að hafa skilað … Halda áfram að lesa Mark fyrir utan Grindavík
Ný Cleopatra 50 til Lófóten í Noregi
Nygrunn N-225-VV. Ljósmynd Trefjar 2021. Útgerðarfélagið Nygrunn AS í Lófóten í Noregi fékk nýverið afhentan nýjan yfirbyggðan Cleopatra 50 netabát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði. Eigendur Nygrunn AS eru bræðurnir Ørjan og Ketil Sandnes. Nýi báturinn heitir Nygrunn og er 15 metrar á lengd og mælist 30 brúttótonn. Báturinn leysir af hólmi eldri eikarbát útgerðarinnar sem … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 50 til Lófóten í Noregi
Norma Mary seld til Grænlands
IMO 8704808. Norma Mary H110 ex Fríðborg FD 242. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2020. Onward Fishing Company hefur selt togara sinn, Norma Mary, til grænlensku útgerðarinnar Polar Seafood. Guðmundur Óli Hilmisson, framkvæmdastjóri Útgerðasviðs Onward, segir í Fiskifréttum í dag að ástæða sölunnar sé brottför Bretlands úr Evrópusambandinu og samningsleysi um veiðiheimildir í kjölfarið. Lesa fréttina í … Halda áfram að lesa Norma Mary seld til Grænlands
Nivenskoyen landaði í Hafnarfirði
IMO 8843018. Nivenskoye K 1966. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Rússneski togarinn Nivenskoyen kom til Hafnarfjarðar í fyrradag með um 1500 tonna afla sem skipað var yfir í flutningaskip. Togarinn, sem var smíðaður árið 1991, er 104 metrar að lengd, 16 metra breiður og mælist 4,407 GT að stærð. Heimahöfn Nivenskoye er Kalinigrad sem er rússnesk borg … Halda áfram að lesa Nivenskoyen landaði í Hafnarfirði
Ocean Tiger að veiðum við A-Grænland
IMO 9136383. Ocean Tiger R 38. Ljósmynd Eiríkur Sigurðsson 2021. Eiríkur Sigurðsson skipstjóri á Reval Viking tók þessa mynd í gær af danska rækjutogaranum Ocean Tiger R 38 þar sem hann var að veiðum í ísnum við Austur-Grænland. Togarinn, sem er í eigu Ocean Prawn A/S, var smíðaður árið 1997 í Noregi. Ocean Tiger er … Halda áfram að lesa Ocean Tiger að veiðum við A-Grænland
Loran á Akureyri
IMO 9191357. Loran M-12-G. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2021. Línu- og netaskipið Loran M-12-G frá Álasundi til Akureyrar fyrir skömmu á leið sinni á Grænlandsmið. Var hann að taka olíu, vatn og vistir. Loran er 51 metrar að lengd, 11 metra breiður og mælist 1,292 brúttótonn að stærð. Skipið var smíðað í Solstrand AS árið 1999. … Halda áfram að lesa Loran á Akureyri
Nivenskoye kom og fór
IMO 8843018. Nivenskoye K 1966. Ljósmynd Magnús Jónsson 2021. Rússneski togarinn Nivenskoyen kom til Hafnarfjarðar í gærmorgun og fór aftur um miðjan daginn. Togarinn, sem var smíðaður árið 1991, er 104 metrar að lengd, 16 metra breiður og mælist 4,407 GT að stærð. Heimahöfn Nivenskoye er Kalinigrad sem er rússnesk borg við Eystrasalt. Borgin og … Halda áfram að lesa Nivenskoye kom og fór
Aqissiaq II GR6-168
IMO 9012654. Aqissiaq II GR6-168 ex Qingaaq. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2021. Grænlenski báturinn Aqissiaq II GR6-168 kom til Vestmannaeyja á dögunum á heimleið frá Danmörku. Þar var báturinn í endurbyggingu en hann stundar rækjuveiðar. Upphaflega hét báturinn Qingaaq og var smíðaður árið 1988 hjá Skaarup & Salskov APS í Thyborøn, Danmörku. Báturinn er 23,9 metrar … Halda áfram að lesa Aqissiaq II GR6-168
Cuxhaven NC 100
IMO 9782778. Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Cuxhaven NC 100 er hér á siglingu inn Eyjafjörð á leið sinni til Akureyrar í októbermánuði árið 2017. Hér má sjá fleiri myndir sem teknar voru þá. Cuxhaven NC 100 er í eigu Deutsche Fischfang Union, dótturfélags Samherja í Þýskalandi. Cuxhaven NC 100 sem hannaður er af … Halda áfram að lesa Cuxhaven NC 100









