Kristján ÍS 122

1303. Kristján ÍS 122. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1993. Rækjubáturinn Kristján ÍS 122 við bryggju á Húsavík sumarið 1993 ef ég man rétt. Kristján var smíðaður í Bátasmiðjunni Vör á Akureyri og afhentur árið 1973. Á vef Árna Björns Árnasonar, aba.is, segir að báturinn hafi verið smíðaður fyrir Jón Kr. Jónsson og Sæmund Árilíusarson, Ísafirði. Þeir … Halda áfram að lesa Kristján ÍS 122 →

Páll Jónsson GK 7

2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2023. Jón Steinar tók þessar myndir af línuskipinu Páli Jónssyni GK 7 þegar hann kom úr síðustu veiðiferð kvótaársins. Vísir hf. i Grindavík lét smíða skipið í Póllandi og kom það til landsins í janúar árið 2020. 2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundson … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 7 →

Ný Cleopatra 33 til Frakklands

Circle D’Or SN 937536. Ljósmynd Trefjar 2023. Bátasmiðjan Trefjar í Hafnarfirði afhenti nýlega Cleopatra 33 bát til Le Croisic á vesturströnd Frakklands.Að útgerðinni stendur David Le Dreau sem einniger skipstjóri á bátnum. Nýi báturinn hefur hlotið nafnið Circle D’Or eða Gullni hringurinn sem er hnýttinn tilvísun í gullna hringinn á Íslandi.  Circle D’Or er af … Halda áfram að lesa Ný Cleopatra 33 til Frakklands →

Hafaldan EA 190

2326. Hafaldan EA 190 ex Konráð eldri EA 190. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Grímseyjarbáturinn Hafaldan EA 190 kemur hér að landi á Dalvík í dag en báturinn tók þátt í sjóstangveiðimóti um helgina. Báturinn hét upphaflega Hópsnes GK 118 og var smíðaður árið 1998 fyrir Stakkavík í Grindavík. Smíðin fór fram í Bátagerðinni Samtak í … Halda áfram að lesa Hafaldan EA 190 →

Sigurbjörg Þorsteins BA 65

1100. Sigurbjörg Þorsteins BA 65 ex Erlingur GK 214. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sigurbjörg Þorsteins BA 65 frá Bíldudal kemur hér til hafnar á Húsavík um árið. Báturinn hét upphaflega Siglunes SH 22 frá Grundarfirði, smíðaður hjá Þorgeir og Ellert h/f árið 1970 fyrir Hjálmar Gunnarsson útgerðarmann. Hér má lesa nánar um bátinn sem gerður var … Halda áfram að lesa Sigurbjörg Þorsteins BA 65 →