Eyrún ÞH 2

7449. Eyrún ÞH 2 ex Sigurbára VE 249. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2014. Eyrún ÞH 2, sem hér siglir hér með Húsavíkurhöfðanum á ágústkvöldi árið 2014, hét upphaflega Guðfinna VE 249. Báturinn var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1996. Báturinn hefur borið nafnið Eyrún ÞH 2 frá árinu 2000 og heimahöfn hans Húsavík. Með … Halda áfram að lesa Eyrún ÞH 2 →

Galti ÞH 320

973. Galti ÞH 320 ex Ljósfari RE 102. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1987. Galti ÞH 320 kemur hér til Húsavíkur eftir að Brík hf. keypti bátinn af Útgerðarfélaginu Barðanum í febrúarmánuði árið 1987. Brík hf. var þá nýstofnað félag í eigu Fiskiðjusamlags Húsavíkur hf. og Langaness hf. á Húsavík. Galti hét upphaflega upphaflega Dagfari ÞH 40 … Halda áfram að lesa Galti ÞH 320 →

Heiðrún EA 28 í breytingum í Vestnes

72. Heiðrún EA 28 ex Grótta AK 101. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson 1987. Heiðrún EA 28 er hér í breytingum en hún var yfirbyggð og skipt um brú í Aas Mek. Verksted AS í Vestnes í Noregi sumarið 1987. Hér má lesa nánar um bátinn en Gylfi Baldvinsson á Árskógssandi keypti hann frá Akranesi árið 1984. … Halda áfram að lesa Heiðrún EA 28 í breytingum í Vestnes →

Sæborg ÞH 55

1475. Sæborg ÞH 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæborg ÞH 55 var smíðuð fyrir Húsvíkinga á Bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri árið 1977. Í Tímanum 4. mars 1977 sagði svo frá: Síðastliðinn laugardag afhenti bátaverkstæði Gunnlaugs og Trausta á Akureyri nýjan eikarbát 40 lestir að stærð og hlaut hann nafnið Sæborg ÞH-55. Báturinn var smíðaður … Halda áfram að lesa Sæborg ÞH 55 →

Fagranes ÞH 123

586. Fagranes ÞH 123 ex Björg Jónsdóttir ÞH 321.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggur Fagranesið við bryggju á Húsavík rétt eftir að nafnaskiptin í janúar árið 1985. Báturinn hét áður Björg Jónsdóttir ÞH 321 en hafði verið seldur til Þórshafnar þegar Langanes hf. keypti Gandí VE 171. Fagranesið, sem var 76 brl. að stærð, hét uppgaflega … Halda áfram að lesa Fagranes ÞH 123 →

Dúddi Gísla GK 48

2640. Dúddi Gísla GK 48. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Dúddi Gísla GK 48 kemur hér að landi í Grindavík vorið 2005 en það var hans heimahöfn. Báturinn, sem heitir Austfirðingur SU 205 í dag, var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak í Hafnarfirði árið 2004. Hann hefur einnig borið nöfnin Ólafur HF 200, Pálína Ágústsdóttir GK 1 … Halda áfram að lesa Dúddi Gísla GK 48 →