Þorsteinn í slipp á Húsavík

926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ég hef áður birt mynd af Þorsteini GK 15 í slipp á Húsavík en læt samt aðra vaða. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Fal­ken­berg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15, þá GK 15 … Halda áfram að lesa Þorsteinn í slipp á Húsavík →

Guðbjörg Ósk SH 251

1354. Guðbjörg Ósk SH 251 ex Guðbjörg Ósk VE 151. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001 Guðbjörg Ósk SH 251 lætur hér úr höfn í Sandgerði um sumarið 2001 en báturinn var með heimahöfn í Ólafsvík. Báturinn, sem er í dag skonnortan Hildur frá Húsavík, hét upphaflega Múli ÓF 5 og var smíðaður á Akureyri árið 1974.Lesa … Halda áfram að lesa Guðbjörg Ósk SH 251 →

Þorsteinn KE 10

310. Þorsteinn KE 10 ex Oddrún RE 126. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Þorsteinn KE 10 sem upphaflega hét Breiðfirðingur SH 101 og var smíðaður í Danmörku árið 1955. Breiðfirðingur var 28 brl. að stærð búinn 140 hestafla Hundestad díeselvél. Hann var smíðaður fyrir Arnar Sigurðsson, Kristján Guðmundsson og Rögnvald Ólafsson á Hellisandi.  … Halda áfram að lesa Þorsteinn KE 10 →

Hildur SH 777 kemur að landi

3047. Hildur SH 777 ex Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025. Vigfús Markússon skipstjóri á Tjaldi SH 270 tók á dögunum þessa mynd af dragnótabátnum Hildi SH 777 þar sem hann var að koma að landi á Rifi. Hér má lesa nánar um bátinn sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku í fyrra. Með því að smella … Halda áfram að lesa Hildur SH 777 kemur að landi →

Páll Jónsson GK 7 á útleið í dag

2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar Sæmundsson tók þessar myndir í dag þega Páll Jónsson GK 7 lét úr höfn í Grindavík eftir að hafa landað þar fullfermi. Aflinn var um 440-450 kör sem gerir um 140-145 tonn og fékkst í 5 lögnum. Uppistaða aflans var langa eða 190 … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 7 á útleið í dag →

Hildur SH 777 við slippkantinn á Akureyri

3047. 3047. Hildur SH 777 ex Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hildur SH 777 er hér við slippkantinn á Akureyri í dag en Slippurinn Akureyri vinnur nú af krafti að smíði nýs vinnsludekks í bátinn. Báturinn sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku í fyrra hét Pia Glanz, var smíðaður í Vest­værf­tet i Hvi­desand í Dan­mörku árið … Halda áfram að lesa Hildur SH 777 við slippkantinn á Akureyri →

Friðrik Sigurðsson ÁR að draga netin

1084. Friðrik Sigurðsson ÁR 17 ex Jóhann Friðrik ÁR 17. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í dag en þær sýna Friðrik Sigurðsson ÁR 17 þar sem hann var að draga netin úti fyrir Straumsvík. Það var ekki að sjá annað á myndunum en það væri mjög gott fiskirí og fiskurinn … Halda áfram að lesa Friðrik Sigurðsson ÁR að draga netin →