1345. Blængur NK 125 ex Freri RE 73. Ljósmynd Hákon U. Seljan Jóhannsson 2019. Hákon U. Seljan Jóhannsson yfirvélstjóri á Bergey VE 544 tók þessar myndir af frystitogaranum Blæng NK 125 í gær. Blængur NK 125 hét upphaflega Ingólfur Arnarson RE 210, einn stóru Spánartogaranna svokölluðu og sá eini sem er enn í fiskiskipaflotanum. 1345. … Halda áfram að lesa Blængur NK 125 á veiðislóðinni
Flokkur: Bátar
Sigurvon ÍS 500
257. Sigurvon ÍS 500 ex Búðafell SU 90. Ljósmynd Sigurður Jóhannesson 1972. Á þessum myndum Sigurðar Jóhannessonar má sjá Sigurvon ÍS 500 leggja upp í róður frá Suðureyri við Súgandafjörð. Sigurvon var smíðuð í Risør í Noregi 1964 og var smíðuð fyrir samnefnt fyrirtæki í Reykjavík sem Sigurður Pétursson útgerðarmaður og Guðmundur Ibsen skipstjóri stóðu … Halda áfram að lesa Sigurvon ÍS 500
Jói á Nesi SH 159
1964. Jói á Nesi SH 159. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Jói á Nesi SH 159 kemur til hafnar í Vestmannaeyjum um árið en hann var smíðaður í Póllandi árið 1988. Einn fjögurra báta sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga þar á árunum 1987-1988 og þeirra stærstur og sá eini sem var yfirbyggður. Báturinn er 27,48 metrar að … Halda áfram að lesa Jói á Nesi SH 159
Skinney SF 20 kom til Reykjavíkur í morgun
2732. Skinney SF 20. Ljósmynd Óskar Franz 2019. Togbáturinn Skinney SF 20 sigldi í morgun frá Hafnarfirði til Reykjavíkur og náði Óskar Franz að fanga hann á kortið. Skinney SF 20 hefur verið í Hafnarfirði frá því hún kom til landsins frá Póllandi eftir lengingu ofl. breytingar. Í Hafnarfirði var sett vinnslulína á millidekkið en … Halda áfram að lesa Skinney SF 20 kom til Reykjavíkur í morgun
Sigurpáll ÞH 130 á leið upp í Húsavíkurslipp
1262. Sigurpáll ÞH 130 ex Guðbörg GK 517. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2008. Sigurpáll ÞH 130 í sleðanum á leið upp í slippinn á Húsavík 9 . júní árið 2008. Upphaflega Sjöfn ÞH 142 frá Grenivík, smíðuð í skipasmíðastöðinni Vör á Akureyri 1972. Síðar Ásgeir Torfason ÍS 96, Rúna RE 150, Óskar ÍS 68, Guðbjörg GK … Halda áfram að lesa Sigurpáll ÞH 130 á leið upp í Húsavíkurslipp
Njarðvík KE 93
219. Njarðvík KE 93 ex Ljósfari GK 183. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Njarðvík KE 93 siglir hér til hafnar í Njarðvík á tíunda áratug síðustu aldar. Upphaflega aflaskipið Víðir II GK 275 úr Garði en hann var smíðaður í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Jónsson á Rafnkelsstöðum í Garði. Báturinn hét Víðir II GK 275 í … Halda áfram að lesa Njarðvík KE 93
Skipanes SH 608
57. Skipanes SH 608 ex Framnes ÍS 608. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson . Skipanes SH 608 er hér að draga netin á Breiðafirði á vetrarvertíð um árið. Upphaflega Framnes ÍS 608 frá Þingeyri, smíðaður í Noregi 1963, nánar tiltekið í Vaagland Baatbyggeri. Framnes var í eigu Kaupfélags Dýrfirðinga og kom til heimahafnar á Þingeyri 16. júní … Halda áfram að lesa Skipanes SH 608
Árni Óla ÍS 81
1222. Árni Óla ÍS 81 ex Árni Óla ÍS 265. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Árni Óla ÍS 81 kemur hér til hafnar í Sandgerði í marsmánuði árið 2002. Báturinn var smíðaður í Trésmiðju Austurlands hf. árið 1972 og hét upphaflega Árni ÓF 44. Hann var 17 brl. að stærð búinn 163 hestafla Scaniaðaðvél. Á vefsíðu Árna … Halda áfram að lesa Árni Óla ÍS 81
Máni GK 36
671. Máni GK 36 ex Haförn ÁR 115. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2002. Netabáturinn Máni GK 36 kemur hér að landi í Keflavík í marsmanuði árið 2002. Máni GK 36 var smíðaður í Danmörku 1959 fyrir fyrir Hraðfrystihús Grindavíkur og kom til heimahafnar á annan dag jóla það ár. 671. Máni GK 36 ex Haförn ÁR 115. … Halda áfram að lesa Máni GK 36
Ársæll ÁR 66
1014. Ársæll ÁR 66 ex Dúi ÍS 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Humarbáturinn Ársæll ÁR 66 lætur hér úr höfn í Þorlákshöfna sumarið 2009 en þá var hann í eigu Atlantshumars ehf. Báturinn hét upphaflega Ársæll en var Sigurðsson GK 320 og með heimahöfn í Hafnarfirði. Síðar hét hann lengi vel Arney KE 50. Því … Halda áfram að lesa Ársæll ÁR 66









