Norwegian Prima

IMO 9823986. Norwegian Prima. Ljósmynd Hafþór Hreiðarssom 2024. Skemmtiferðaskipið Norwegian Prima siglir hér út Eyjafjörð síðdegis í dag. Skipið, sem siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau, var smíðað á Ítalíu og afhent árið 2022. Norwegian Prima er 299 metrar að lengd, breidd þess er 51 metrar og það mælist 143,535 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Norwegian Prima

Knörrinn

306. Knörrinn ex Hrönn EA 258. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Knörrinn leggur hér upp í hvalaskoðunarferð á Skjálfanda í morgun. Hér má finna sögu bátsins sem Norðursigling hefur gert út til hvalaskoðunar frá árinu 1995. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them … Halda áfram að lesa Knörrinn

Þrír bláir

Dragnótabátar í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðasson 2024. Blár er allsráðandi litur í íslenska bátaflotanum og hér sjást þrír slíkir í Húsavíkurhöfn sl. sunndag. Hafborgin liggur utan á Þvergarðinum og Geir fyrir innan en Bárður kemur að. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Þrír bláir

Háey I og Hafborg við bryggju

2995. Háey I ÞH 295 - 2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér gefur að líta línubátinn Háey I ÞH 295 og neta- og dragnótabátinn Hafborgu EA 152 þar sem þeir lágu við Suðurgarðinn í Húsavíkurhöfn í gærkveldi. Háey I er gerð út af GPG Seafood ehf. á Húsavík en er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Háey I og Hafborg við bryggju

Nýtt kvótaár hafið

Landað úr Haferni ÞH 26 á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Nýtt kvótaár hófst í dag og einnig hefjast 1. september dragnótaveiðar innan línu á Skjálfandaflóa. Einn þeirra dragnótabáta sem réru í dag á Skjálfanda var Haförn ÞH 26 og á myndinni er Guðmundur Vilhjálmsson vélstjóri við löndun úr bátnum. Með því að smella … Halda áfram að lesa Nýtt kvótaár hafið

Bárður SH 81

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Það var farið að skyggja þegar Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom til hafnar á Húsavík á áttunda tímanum í kvöld. Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Smíði bátsins fór … Halda áfram að lesa Bárður SH 81