Bátar við bryggju á Árskógssandi

Bátar við bryggju á Árskógssandi. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggja við bryggju á Árskógssandi bátarnir Særún EA 251, Sólrún EA 151 og Heiðrún EA 28 sem var nýlögst að. Myndin var tekin ca. 1985 að vori ef ég man rétt. Eini báturinn sem enn er í flotanum er Sólrún sem í dag heitir Bjössi Sör … Halda áfram að lesa Bátar við bryggju á Árskógssandi

Vörður landaði í Grindavík í gær

2962. Vörður ÞH 44 landaði í Grindavík í gær. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson. Vörður ÞH 44 kom í gærmorgun til löndunar í Grindavík. Aflinn var um 140 kör eftir tæpa tvo sólarhringa á veiðum. Jón Steinar tók þessar myndir af Verði sem hélt út aftur að löndun lokinni. Jón Steinar bendir á að þessi löndun … Halda áfram að lesa Vörður landaði í Grindavík í gær

Ágústa Haraldsdóttir VE 108.

Ágústa Haraldsdóttir VE 108 ex Haraldur EA 62. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Ágústa Haraldsdótir VE 108 hét upphaflega Gnýfari SH 8 og var smíðaður árið 1960 í Dráttarbrautinni h/f í Neskaupstað fyrir Gnýfara h/f í Grundarfirði. Báturinn var 65 brl. að stærð, upphaflega búinn 400 hestafla MWM aðalvél en árið 1973 var sett í hann 370 … Halda áfram að lesa Ágústa Haraldsdóttir VE 108.

Fjølnir á landleið í dag

2714. Fjølnir GK 757 ex Sævík GK 757. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Á þessum myndum Jóns Steinars gefur að líta línubátinn Fjølnir á landleið til Grindavíkur í dag. Aflinn var einhver 8-9 tonn sem fékkst úti í Grindavíkurdýpi hvar hann var að eltast við ýsu. Fjølnir hét áður Sævík GK 575 en upphaflega Óli … Halda áfram að lesa Fjølnir á landleið í dag

María Júlía á siglingu fyrir Bjargtanga

151. María Júlía BA 36 ex björgunar- og varðskipið María Júlía. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Þessa flottu mynd tók Jón Páll Ásgeirsson c.a 1977-8 en hún sýnir Maríu Júlíu BA 36 á siglingu fyrir Bjargtanga. María Júlía var smíðuð sem björgunar- og varðskip í Frederikssund Skibsværft í Frederikssund í Danmörku árið 1950 fyrir Ríkissjóð Íslands.  … Halda áfram að lesa María Júlía á siglingu fyrir Bjargtanga

Dalaröst ÁR 63

1639. Dalaröst ÁR 63 ex Jón Bjarnason SF 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1999. Dalaröst Ár 63 kemur að bryggju á Húsavík um árið en báturinn var þarna nýkeyptur til Húsavíkur. Útgerðarfélagið Flóki ehf. keypti hann frá Þorlákshöfn og skömmu síðar varð Dalaröstin ÞH 40. Báturinn var smíðaður í Noregi 1978 en keyptur til landsins fjórum … Halda áfram að lesa Dalaröst ÁR 63