Ólafur GK 133

7336. Ólafur GK 133 ex Hafdís ÍS 35. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Hér er Ólafur GK 133, nýjasti strandveiðibátur Grindvíkinga, á skaki úti fyrir Hópsnesi við Grindavík í gær en Eiríkur Dagbjartsson gerir hann út í gegnum fyrirtæki sitt Grindjáni ehf. Ólafur GK 133 hét upphaflega Aðalbjörg Þorsteinsdóttir HF 33 og var smíðaður hjá … Halda áfram að lesa Ólafur GK 133

Við Húsavíkurhöfn

Við Húsavíkurhöfn 11. maí 2025. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta mynd sem tekin var við Húsavíkurhöfn í veðurblíðu gærdagsins. Á myndinni má m.a sjá strandveiðibáta við bryggju ásamt frístundabátum. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images you can view them in … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn

Hrafnreyður KÓ 100

1324. Hrafnreyður KÓ 100 ex Valur ÍS 18. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson 2013. Hrefnubátnum Hrafnreyður KÓ 100 er hér á mynd sem Jón Páll Ásgeirsson tók á miðunum sumarið 2013. Báturinn var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1973 og er 101 brl. að stærð. Hann hét upphaflega Ottó Wathne NS 90 og var í … Halda áfram að lesa Hrafnreyður KÓ 100

Jökull útbúinn á grálúðunet

2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. 11. maí er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd sem tekin var við Húsavíkurhöfn í morgun. Þar var verið að útbúa Jökul ÞH 299 til grálúðuveiða í net en hann kom á dögunum norður eftir vetrarvertíð. Byrjaði í Breiðafirði en … Halda áfram að lesa Jökull útbúinn á grálúðunet

Svanur EA 14

7498. Svanur EA 14 ex Sigurveig EA 527. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Svanur EA 14 sem hér um ræðir var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 2001. Upphaflega hét hann Vík SH 13 og var smíðaður fyrir  Útgerðarfélagið Kríli ehf. Grundarfirði. Ári síðar var báturinn seldur norður í land og fékk nafnið Sigurveig EA 527 … Halda áfram að lesa Svanur EA 14

Moby Dick

46. Moby Dick ex Fjörunes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick heldur hér í ferð út á Skjálfandaflóa en það var Arnar Sigurðsson sem gerðu bátinn út á sínum tíma. Upphaflega Djúpbáturinn Fargranes sem smíðaður var í Florø í Noregi árið 1963 og mældist þá 134 brl. að stærð. Moby Dick kom til Húsavíkur sumarið … Halda áfram að lesa Moby Dick

Heimaey VE 1 seld til Noregs

2812. Heimaey VE 1. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Ísfélag hf. hefur selt Heimaey VE 1 til norska félagsins Andrea L AS. og í kvöld kll 20:00 lét hún síðasta sinn úr heimahöfn í Eyjum. Áfangastaðurinn er Maloy en þar verður skipið afhent norskum kaupendum í næstu viku. Tryggvi Sigurðsson tók meðfylgjandi mynd í kvöld. Í … Halda áfram að lesa Heimaey VE 1 seld til Noregs