7311. Njörður ÞH 444 ex Hanna Ellerts SH 4. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Þessa mynd af strandveiðibátnum Nirði ÞH 444 tók ég í kvöldsól gærdagsins þar sem hann lá við bryggju á Húsavík. Njörður hét áður Hanna Ellerts SH 4 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1991. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Njörður í kvöldsólinni
Author: Hafþór Hreiðarsson
Garðar í Húsavíkurslipp
260. Gardar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hvalaskoðunarbáturinn Garðar baðar sig hér í kvöldsólinni þar sem hann stendur upp í Húsavíkurslipp. Þar hefur báturinn verið undarfarnar vikur í skveringu fyrir komandi sumarvertíð en það er Norðursigling sem gerir bátinn út. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá … Halda áfram að lesa Garðar í Húsavíkurslipp
Hulda Björnsdóttir GK 11 á útleið frá Grindavík
3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af togaranum Huldu Björnsdóttur GK 11 þegar hún hélt til veiða frá Grindavík í dag. Það er útgerðarfélagið Ganti ehf í Grindavík sem á og gerir togarann út en hann var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á Spáni … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 á útleið frá Grindavík
Ronja Carrier
IMO 9452311. Ronja Carrier. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Seiðaflutningaskipið Ronja Carrier kom til Húsavíkur í dag en stoppaði stutt og er í þessum skrifuðu orðum á stími austur að Kópaskeri. Ronja Carrier var smíðuð í Aas-skipasmíðastöðinni í Vestnes, Noregi árið 2010 og hét upphaflega Oydrott. Skipið, sem siglir undir norskum fána og er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Ronja Carrier
Hawkerinn GK 64
7432. Hawkerinn GK 64 ex Binna GK 64. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Hér lætur Hawkerinn GK 64 reka á skakinu úti fyrir Hópsnesinu á dögunum en báturinn er með heimahöfn í Garðinum. Upphaflega hét báturinn Bjarney ÍS 204 frá Flateyri og var smíðaður hjá Trefjum í Hafnarfirði árið 1995. Árið 1999 er heimahöfnin orðin … Halda áfram að lesa Hawkerinn GK 64
Kósý EA 37
7337. Kósý EA 27 ex Unnur GK 41. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Hér kemur mynd frá árinu 2012 sem sýnir Sómabátinn Kósý EA 27 úr Grímsey koma til hafnar á Dalvík. Báturinn hét upphaflega Unnur ÁR 7 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1991. Árið 1997 varð Unnur SF 202 með heimahöfn … Halda áfram að lesa Kósý EA 37
Villi á Brekkum ÞH 226
2672. Villi á Brekkum ÞH 226 ex Áki í Brekku SU 760. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Nýr bátur Ugga fiskverkunnar, Villi á Brekkum ÞH 226, kom til heimahafnar á Húsavík í gærkveldi. Báturinn, sem bar áður nafnið Áki í Brekku SU 760, hét upphaflega Óli á Stað GK 99 og var smíðaður í Njarðvík árið … Halda áfram að lesa Villi á Brekkum ÞH 226
Skúli fógeti VE 185
1082. Skúli fógeti VE 185 ex Albert Ólafsson KE 39. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Það hefur áður komið mynd frá Tryggva af Skúla fógeta VE 185 á síðunni en þar var hann kominn með hvalbakinn. Hér birtist hann hvalbakslaus en báturinn hét upphaflega Fróði ÁR 33 og var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1969. Fróði … Halda áfram að lesa Skúli fógeti VE 185
Tjúlla GK 29 á landleið
2595. Tjúlla GK 29 ex Grunnvíkingur HF 163. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Tjúlla GK 29 er hér á leið til hafnar í Sandgerði eftir róður í fyrradag. Upphaflega hét báturinn Grunnvíkingur HF 163 og var smíðaður hjá Sólplasti í Sandgerði árið 2003. Heimahöfn Hafnarfjörður. Hann hefur heiti Tjúlla GK 29 frá árinu 2015, fyrst … Halda áfram að lesa Tjúlla GK 29 á landleið
Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun
IMO 9813084. Fridtjof Nansen. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun og þar var á ferðinni Fridtjof Nansen. Fridtjof Nansen er svokallað leiðangursskip sem HX Expeditions (áður Hurtigruten) gerir út og ber nafn norska landkönnuðar og vísindamannsins, Fridtjof Nansen. Skipið er tvíorku (hybrid) skip og var afhent frá Kleven Verft AS … Halda áfram að lesa Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins kom til Húsavíkur í morgun









