IMO 9837470. Rotterdam á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Farþegaskipið Rotterdam sigldi inn Skjálfandann í morgun og lagðist við akkeri framundan Húsavík. Rotterdam er stærsta skipið sem komið hefur hingað það sem af er sumri en það er 299,79 metrar að lengd, breidd þess er 35 metrar og það mælist 99,935 GT að stærð. Skipið … Halda áfram að lesa Rotterdam kom í morgun
Author: Hafþór Hreiðarsson
Malik Arctica kom til Húsavíkur í morgun
IMO 9618135. Malik Arctica á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Flutningaskipið Malik Actica kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Bökugarði Skipið er í eigu Royal Arctic Line A/S á Grænlandi og var smíðað árið 2017. Það siglir undir dönskum fána með heimahöfn í Álaborg. Malik Arctica er 114,4 metrar að lengd, breidd skipsins … Halda áfram að lesa Malik Arctica kom til Húsavíkur í morgun
Aðalbjörg RE 5 á dragnótaveiðum
1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar myndaði Aðlbjörgu RE 5 þar sem hún var við dragnótaveiðar í gær. Vestur á Víkum eins og ljósmyndarinn orðaði það. Aðalborg RE 5 var smíðuð á Seyðisfirði árið 1987 en látum myndirnar tala sínu máli. 1755. Aðalbjörg RE 5. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. … Halda áfram að lesa Aðalbjörg RE 5 á dragnótaveiðum
SH Diana kom til Húsavíkur í morgun
IMO 9921740. SH Diana á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið SH Diana kom til Húsavíkur í morgun og lagðist að Norðurgarði en fyrir var í höfn Hanseatic nature. SH Diana siglir undir fána Panama með heimahöfn í Panamaborg. Skipið var smíðað í Helsinki í Finnlandi árið 2023 og mælist 12,255 GT að stærð. Lengd … Halda áfram að lesa SH Diana kom til Húsavíkur í morgun
Garðey SF 22
1759. Garðey SF 22 ex Lasiry. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Garðey SF 22 er hér á toginu um árið en hún var keypt frá Danmörku og kom til heimahafnar á Hornafirði í lok janúarmánaðar árið 1987. Það var Garðey hf. sem keypti bátinn sem var 117 brl. að stærð og smíðaður í Hvide Sand í Danmörku … Halda áfram að lesa Garðey SF 22
Borgin ÞH 70
2494. Borgin ÞH 70 ex Garðar ÍS 225. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2015. Borgin ÞH 70 hét upphaflega Jakob Valgeir ÍS 84 frá Bolungarvík og var smíðaður árið 2000 fyrir Hrönn ehf. í Bátastöðinni Knörr á Akranesi. Í janúar árið 2005 fékk báturinn nafnið Guðný ÍS 84 og síðar Bensi EA 125, Bensi ÍS 225 og … Halda áfram að lesa Borgin ÞH 70
Mardís ÞH 151
6425. Mardís ÞH 151. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Mardís ÞH 151 var smíðuð árið 1983 og gerð út af Árna Sigurðssyni til ársins 2003 er Uggi fiskverkun ehf. á Húsavík kaupir hana. Ári síðar er Baldur Sigtryggsson skráður eigandi og báturinn kominn í núllflokk á Fiskistofu og afskráður árið 2007. Skrokkur bátsins var smíðaður hjá … Halda áfram að lesa Mardís ÞH 151
Sæljón RE 19
2430. Sæljón RE 19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sæljón RE 19 kemur hér til hafnar í Keflavík eitt haustið eftir dragnótaróður í Bugtinni. Báturinn er einn hinna svokölluðu Kínabáta sem smíðaðir voru í Dalian í Kína og komu til landsins á árinu 2001. Sæljón var smíðað fyrir Sæljón ehf. í Reykjavík og leysti af hólmi 29 … Halda áfram að lesa Sæljón RE 19
Benni Sæm að veiðum
2430. Benni Sæm GK 26 ex Sæljón RE 19. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir sem nú birtast í gær af dragnótabátnum Benna Sæm GK 26 þar sem hann var að veiðum á Keflavík sem er rétt austan við Krísuvíkurberg, út af svo kölluðum Bergendum. Benni Sæm hét upphaflega Sæljón RE … Halda áfram að lesa Benni Sæm að veiðum
National Geographic Explorer
IMO 8019356. National Geographic Explorer. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Leiðangursskipið National Geographic Explorer var á Húsavík í dag líkt og CH Vega sem birtist hér á síðunni í gær. Skipin létu úr höfn síðdegis og hér bortast myndir af því fyrrnefnda. Skipið var smíðað árið 1982 í Ulstein Verft AS í Noregi og bar nafnið … Halda áfram að lesa National Geographic Explorer









