7337. Hugrún Fjóla DA 4 ex Gunna Valda ÍS 75. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025. Hugrún Fjóla DA 4 hét upphaflega Unnur ÁR 7 og var smíðaður hjá Bátasmiðju Guðmundar í Hafnarfirði árið 1991. Árið 1997 varð Unnur SF 202 með heimahöfn á Hornafirði og síðar sama ár var heimahöfnin orðin Grindavík og Unnur GK 41. … Halda áfram að lesa Hugrún Fjóla DA 4
Author: Hafþór Hreiðarsson
Emma VE 219
1664. Emma VE 219. Ljósmynd Hörður Harðarson. Emma VE 219, smíðuð í Póllandi fyrir samnefnt fyrirtæki í Vestmannaeyjum. Nánar tiltekið hjá Tczew Yard í Tczew í Póllandi árið 1988. Emma var 82 brl. að stærð en eftir lengingu um 5,5 metra árið 1999 mældist hún 114 brl. að stærð. Árið 2000 keypti Bergur-Huginn hf. Emmuna og … Halda áfram að lesa Emma VE 219
Seljavík BA 112
1210. Seljavík BA 112 ex Björn EA 220. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001. Seljavík BA 11 sem hér liggur við bryggju í Reykjavík hét upphaflega Magnús EA 25 og hafði heimahöfn í Grímsey. Báturinn var smíðaður árið 1972 í Bátalóni fyrir Sigfús Jóhannesson. Árið 1991 fékk báturinn nafnið Björn EA 22 og var áfram með heimahöfn … Halda áfram að lesa Seljavík BA 112
Sæfari SH 104
1750. Sæfari SH 104 ex Vinur ÞH 73. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025. Vigfús Markússon tók þessa mynd af Sæfara SH 104 frá Stykkishólmi á dögunum. Það er Hólmurinn ehf. sem gerir bátinn út en hann kemur úr smiðju Baldurs á Hlíðarenda við Akureyri. Báturinn var smíðaður árið 1986 og hét Matthildur EA 222 en árið 1991 … Halda áfram að lesa Sæfari SH 104
Villi á Brekkum ÞH 226
2672. Villi á Brekkum ÞH 226 ex Áki í Brekku SU 760. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Strandveiðibáturinn Villi á Brekkum ÞH 226 kemur hér til hafnar á Húsavík í morgun. Báturinn, sem bar áður nafnið Áki í Brekku SU 760, hét upphaflega Óli á Stað GK 99 og var smíðaður í Njarðvík árið 2005. Árið … Halda áfram að lesa Villi á Brekkum ÞH 226
Margrét GK 27 að veiðum
1458. Margrét GK 27 ex Ísey EA 40. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af dragnótabátnum Margréti GK 27 rétt fyrir utan Grindavík í byrjun vikunnar. Margrét hét áður Ísey EA 40 en upphaflega Langanes ÞH 321 og var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar h/f árið 1976. Hann var fjórði báturinn sem stöðin smíðaði … Halda áfram að lesa Margrét GK 27 að veiðum
Brunnbáturinn Valur
3057. Valur ex Faeroy. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hér gefur að líat nýjan brunnbát Háafells ehf. sem ber nafnið Valur og er með heimahöfn á Ísafirði. Valur, sem áður bar nafnið Fareoy, var keyptur frá Chile en þar var hann í eigu útgerðarfyrirtækisins Friosur. Valur var smíðaður árið 1998 og er 499 GT að stærð. … Halda áfram að lesa Brunnbáturinn Valur
MSC Preziosa
IMO 9595321. MSC Preziosa. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Farþegaskipið MSC Preziosa siglir hér inn til hafnar í Reykjavík sl. föstudagsmorgun. Skipið var smíðað í Frakklandi árið 2013 og siglir undir fána Panama með heimahöfn í Panamaborg. MSC Proziosa er 335,35 metrar að lengd, breidd skipsins er 39,7 metrar og það mælist 139,072 GT að stærð. … Halda áfram að lesa MSC Preziosa
Helgi SH 210
7709. Helgi SH 210 ex Sumrungur SH 210. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Helgi SH 210 frá Ólafsvík hét áður Sumrungur SH 210 og var smíðaður árið 2014. Á vefnum aba.is segir að báturinn sé skráður hjá Siglingastofnun sem sameiginleg smíði Seiglu ehf. og Sumrungs sf. og má ætla að fyrrnefnda fyrirtækið hafi séð um skrokk … Halda áfram að lesa Helgi SH 210
Rotterdam kom í morgun
IMO 9837470. Rotterdam á Skjálfanda. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Farþegaskipið Rotterdam sigldi inn Skjálfandann í morgun og lagðist við akkeri framundan Húsavík. Rotterdam er stærsta skipið sem komið hefur hingað það sem af er sumri en það er 299,79 metrar að lengd, breidd þess er 35 metrar og það mælist 99,935 GT að stærð. Skipið … Halda áfram að lesa Rotterdam kom í morgun









