IMO 8707343. Star Pride ex Seabourn Pride. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið Star Pride kom til Húsavíkur nú í hádeginu og lagðist að Bökugarði. Star Pride, sem áður hét Seabourn Pride var smíðað í Bremerhaven í Þýskalandi árið 1988. Skipið fékk núverandi nafn árið 2014. Skipið er 12,969 GT að stærð, lengd þess er 159 … Halda áfram að lesa Star Pride kom til Húsavíkur í hádeginu
Author: Hafþór Hreiðarsson
Herjólfur kemur til Landeyjarhafnar
2941. Herjólfur. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Herjólfur kemur hér til Landeyjarhafnar fyrr í mánuðinum en það var Jón Steinar Sæmundsson sem tók myndirnar. Herjólfur, sem kom nýr til landsins árið 2019, er 3,270 BT að stærð og skráð lengd hans er 68,86 metrar. 2941. Herjólfur. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Herjólfur kemur til Landeyjarhafnar
Seven Seas Navigator
Skemmtiferðaskipið Seven Seas Navigator skríður hér út frá Húsavík síðdegis í gær og sigldi sem leið lá út með Tjörnesi. Skipið var smíðað í Ancona á Ítalíu árið 2020 og siglir undir fána Marshalleyja með heimahöfn á Majuro. Seven Seas Navigator er 56,182 GT að stærð. Lengd skipsins er 224 metrar og breidd þess 31 … Halda áfram að lesa Seven Seas Navigator
Jóhanna Gísladóttir GK 357
2677. Jóhanna Gísladóttir GK 357 ex Bergur VE 44. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jóhanna Gísladóttir GK 357 landaði fullfermi í Grindavík í gær eða 235 körum sem gera um 75 tonn. Uppistaðan var þorskur og karfi. Veitt var á Halamiðum. Jón Steinar tók þessar myndir sem sýna togarann koma til hafnar og leggja síðan upp … Halda áfram að lesa Jóhanna Gísladóttir GK 357
Geirfugl og Björg Jónsdóttir
88. Geirfugl GK 88 ex Héðinn ÞH 57 - 263. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Gandí VE 171. Hér gefur að líta tvo báta sem eiga það smeiginlegt að hafa verið gerðir út frá Húsavík og Grindavík. Sunnan á bryggjunni liggur Geirfugl GK 88 sem smíðaður var fyrir Hreifa hf. á Húsavík árið 1960 en … Halda áfram að lesa Geirfugl og Björg Jónsdóttir
Le Lyrial
IMO 9704130. Le Lyrial Skemmtiferðaskipið Le Lyrial var á Húsavík í vikunni og var þessi mynd tekin er skipið lét úr höfn. Le Lyrial, sem siglir undir frönskum fána, var smíðað í Ancona á Ítalíu árið 2015 og er 10,992 GT að stærð. Lengd skipsins, sem er í eigu Pontant skipafélagsins, er 141,2 metrar og breidd þess átján … Halda áfram að lesa Le Lyrial
Páll Pálsson ÍS 102
2904. Páll Pálsson ÍS 102. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Páll Pálsson ÍS 102 lætur hér úr höfn í Hafnarfirði á dögunum en hann það er Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf. sem gerir hann út. Sennilega var um prufusiglingu að ræða því hann kom inn aftur um kvöldið. Togarinn var smíðaður hjá Huanghai Shipbuilding Co Ltd … Halda áfram að lesa Páll Pálsson ÍS 102
Portland VE 97
219. Portland VE 97 ex Arney HF 361. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Portland VE 97 hét upphaflega Víðir II GK 275 og var smíðaður í Noregi árið 1960 fyrir Guðmund Jónsson á Rafnkelsstöðum í Garði. Báturinn hét þessu nafni í 30 ár en í febrúarmánuði 1984 var Rafn hf. skráður eigandi. Árið 1990 fékk hann nafnið Ljósfari GK … Halda áfram að lesa Portland VE 97
Svanborg VE 52
1320. Svanborg VE 52 ex Leó VE 400. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Svanborg VE 52 var 12 brl. að stærð og smíðuð á Seyðisfirði árið 1973 fyrir Bjarg h/f þar í bæ. Báturinn bar upphaflega nafnið Þórir Dan NS 16. Hann var seldur Gunnari Egilssyni í Bolungarvík árið 1974 og hélt hann nafninu en varð ÍS … Halda áfram að lesa Svanborg VE 52
Saxhamar SH 50
1028. Saxhamar SH 50 ex Sjöfn EA 142. Ljósmynd Vigfús Markússon. Saxhamar SH 50 kemur hér til hafnar á Rifi sem er hans heimahöfn. Útnes ehf. á og gerir bátinn út sem hét upphaflega Hrafn Sveinbjarnarson GK 255 og var smíðaður 1967 fyrir Þorbjörn hf. í Grindavík. Einn 18 báta sem smíðaðir voru í skipasmíðastöðinni V.e.b Elbewerft … Halda áfram að lesa Saxhamar SH 50









