Hlífar Pétur NK 15

923. Hlífar Pétur NK 15 ex Skálaberg ÞH 244. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hlífar Pétur NK 15 lætur hér úr höfn í Vestmannaeyjum um árið en myndina tók Tryggvi Sigurðsson. Saltfang hf. á Neskaupstað keypti bátinn frá Húsavík árið 1990 og átti hann í um þrjú ár. Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda … Halda áfram að lesa Hlífar Pétur NK 15

Hulda Björnsdóttir GK 11

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í gær þegar ísfisktogararinn Hulda Björnsdóttir GK 11 kom til Grindavíkur í SSA 10-12 metravindi og rigningarsudda. Aflinn var um 145 tonn sem fékkst fyrir austan land. Hulda Björnsdóttir GK 11 var smíðuð árið 2024 hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11

Eivind VA-132

IMO 8619522. Eivind VA-132 ex Vestliner. Ljósmynd Vigfús Markússon. Nú birtist mynd af Færeyska línuskipinu Eivind VA-132 frá Sandavagi sem Vigfús Markússon tók um árið. Eivind hét upphaflega Vestliner og var smíðaður í Noregi árið 1987, bar síðar nöfnin Atlantic Explorer, Lord Auckland, aftur Vestliner og Nordkappjenta. Skipið var selt til Færeyja árið 2010 og … Halda áfram að lesa Eivind VA-132

Jökull SK 16 sökk öðru sinni í Hafnarfjarðarhöfn

288. Jökull SK 16 sokkinn í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Eikarbáturinn Jökull SK 16 sökk í Hafnarfjarðarhöfn um helgina og það ekki í fyrsta skipti. Báturinn hefur legið um allanga hríð við bryggju í Hafnarfirði og sökk þar í fyrra skiptið árið 2020. Líkt og þá lá Þorsteinn ÞH 115 utan á Jökli … Halda áfram að lesa Jökull SK 16 sökk öðru sinni í Hafnarfjarðarhöfn

Breiðafjarðarferjan Baldur

3039. Baldur ex Røst. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Tryggvi Sigurðsson tók þessa mynd á dögunum af Breiðarfjarðaferjunni Baldri koma til hafnar í Vestmannaeyjum en Baldur hefur undanfarnar vikur leyst Herjólf af meðan hann er í slipp. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Breiðafjarðarferjan Baldur

Hákon á Höfn

3059. Hákon ÞH 250. Ljósmynd Sigurður Davíðsson 2025. Hér gefur að líta Hákon ÞH 250 við bryggju á Hornafirði en hann landar þar síld að ég held. Myndirnar tók Sigurður Davíðsson skipverji á Steinunni SF 10 sem landaði á Hornafirði í gær. 3059. Hákon ÞH 250. Ljósmyndir Sigurður Davíðsson 2025. Með því að smella á … Halda áfram að lesa Hákon á Höfn