
Sæljós GK 185 hét upphaflega Valur NK 108 var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1968.
Árið 1974 fékk báturinn nafnið Arnþór EA 16 með heimahöfn á Árskógssandi þar sem hann var næstu tíu árin.
Þá fékk hann nafnið Fossborg ÁR 31 og síðar hét hann m.a Helguvík ÁR, Sæmundur GK, Sæmundur SF og Sæljós GK og árið 2010 var hann kominn á Djúpavog þar sem hann fékk nafnið Sænes SU 44.
Það var svo árið 2020 sem Gullrún ehf. á Breiðdalsvík kaupir bátinn og hann fær nafnið Goðaborg SU 16.
Báturinn hefur verið lengdur, settur á hann hvalbakur og ný brú. Hann er 64.7 brúttótonn, 21 metri að lengd og 4.8 metrar á breidd.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution