Pétur Jónsson RE 14

1069. Pétur Jónsson RE 14 ex Haförn RE 14. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Pétur Jónsson RE 14 liggur hér við slippkantinn á Akureyri eitt vorið hér áður fyrr, ca 1983 eða 1984 eða þar um bil.

Upphaflega hét skipið, sem var 448 brl. að stærð, Loftur Baldvinsson EA 24 og var smíðað í Noregi árið 1968 fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík.

Árið 1977 var skipið yfirbyggt en í ársbyrjun 1980 kaupa Júlíus og Pétur Stefánssynir Loft Baldvinsson EA 24 og nefna Haförn RE 14. Um vorið fékk hann svo nafnið Pétur Jónsson RE 14.

Árið 1985 var Pétur Stefánsson einn skráður eigandi skipsins.

Sumarið 1987 var Pétur Jónsson RE 14 seldur til Noregs en þá fékk Pétur Stefánsson nýjan og glæsilegan Pétur Jónsson RE 69.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

1 athugasemd á “Pétur Jónsson RE 14

Skildu eftir svar við Orri Hætta við svar