
Muggur EA 26, sem kemur hér að bryggju á Húsavík sumarið 2000, var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri árið 1971 fyrir Dalvíkinga og hét upphaflega Bliki EA 12.
Árið 1975 var Bliki seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Jói á Nesi SH 159. Árið 1978 var báturinn keyptur til Húsavíkur þar sem hann fékk nafnið Ásgeir ÞH 198.
Seldur árið 1985 á Hvammstanga þar sem hann fékk nafnið Haförn HU 4.
Fór austur á land og varð Haförn SU 4. Næst var það Haförn HF 375 og því næst Örn ÍS 18, Örn Í 122 og síðan aftur Haförn HU 4.
Árið 2000 fékk hann nafnið Muggur EA 26 eftir að hafa verið keyptur til sinnar upprunalegu heimahafnar á ný.
Muggur EA 26 var tekinn af skipaskrá árið 2006.
Síðar var hafin var endurbygging á bátnum á Siglufirði sem sagt var frá á síðunni á sínum tíma.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.