Kristján HF 100 á landleið

2961. Kristján HF 100. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Hér er Kristján HF 100 á landleið til Grindavíkur í gærkvöldi baðaður geislum kvöldsólarinnar en hann var að veiðum rétt austan við Grindavík. Kristján HF 100 er yfirbyggður Cleopatra 46B beitningavélarbátur frá Trefjum sem var afhentur sumarið 2018. Báturinn er 14 metrar að lengd og mælist 30 brúttótonn. … Halda áfram að lesa Kristján HF 100 á landleið

Olíuskipið Keilir

2946. Keilir. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Olíuskipið Keilir er hér á ferðinni um Sundin á öðrum degi páska en hann er í eigu Olíudreifingar. Keilir var míðaður hjá Akdeniz skipasmíðastöðinni í Tyrklandi og kom til landsins í febrúarmánuði árið 2019. Keilir, sem leysti Laugarnes af hólmi í olíuflutningunum, siglir undir íslensku flaggi og er 496 … Halda áfram að lesa Olíuskipið Keilir

Brimsvala SH 262

7527. Brimsvala SH 262. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Brimasvala SH 262 var smíðuð fyrir samnefnt fyrirtæki hjá Bátasmiðju Guðmundar árið 2003. Báturinn, sem er af gerðinni Sómi 795, var upphaflega með heimahöfn í Stykkishólmi en frá árinu 2012 er heimahöfnin Staðarsveit. 7527. Brimsvala SH 262. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson 2025. Með því að smella á myndirnar … Halda áfram að lesa Brimsvala SH 262

Grindjáni að veiðum úti fyrir Hópsnesi

7325. Grindjáni GK 169 ex Grindjáni GK 25. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Hér kemur myndasyrpa frá öðrum degi páska sem Jón Steinar tók af Grindjána GK 169 við handfæraveiðar úti fyrir Hópsnesi. Grindjáni hét upphaflega Toggi ÁR 75 og var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar árið 1991. Frá árinu 1994 hét báturinn Tindur SH-179, Ólafsvík.  … Halda áfram að lesa Grindjáni að veiðum úti fyrir Hópsnesi

Björgúlfur EA 312

2892. Björgúlfur EA 312. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Samherjatogarinn Björgúlfur EA 312 kom til hafnar í Hafnarfirði nú síðdegis og lá ég fyrir honum þar. Björgúlfur var smíðaður í Tyrklandi árið 2017 og kom til heimahafnar á Dalvík 1. júní það ár. Björgúlfur er einn fjögurra togara sem smíðaður er eftir sömu teikningu fyrir íslenskar útgerðir í Cem­re-skipasmíðastöðinni. … Halda áfram að lesa Björgúlfur EA 312

Fróði ÁR 33

10. Fróði ÁR 33 ex Arnarnes GK 52. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Fróði ÁR 3 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum um árið en hann var smíðaður árið 1963 í Stálsmiðjunni hf. í Reykjavík. Báturinn hét upphaflega Arnarnes GK 52 og var smíðaður árið 1963 í Stálsmiðjunni hf.í Reykjavík. Fróði var fyrir lengingu 103 brl. að … Halda áfram að lesa Fróði ÁR 33