Tjaldanes GK 525

239. Tjaldanes GK 525 ex Kristbjörg ÍS 177. Ljósmynd Vigfús Markússon.

Tjaldanes GK 525 hét upphaflega Fróðaklettur GK og var smíðað hjá Ankerlökker Verft A/S í Florö í Noregi 1964.

Útgerðarfélag Skagfirðinga h/f á Sauðárkróki keypti bátinn árið 1968 og fékk hann nafnið Drangey SK 1. 

Seldur Vestra h/f á Pareksfirði árið 1972 og þar fékk hann nafnið Vestri BA 63. Endurmældur það ár og varð við það 204 brl. að stærð.

Báturinn var yfirbyggður og skipt um brú 1986. Einnig endurmældu aftur og mælist þá 196 brl. að stærð.

Upphaflega var 660 hestafla Lister vél í bátnum en árið 1979 var sett Mirrleses Blackstone, einnig 660 hestöfl, í hann.

Hraðfrystuhús Hellisands hf. kaupir Vestra BA 63 og gefur honum nafnið Örvar SH 777 árið 1994. Fyrirtækið gerði hann út til ársins 2008 er nýr og stærri Örvar SH 777 leysti hann af hólmi.

Hann fékk nafnið Örvar II SH 177 um tíma en eftir það hét hann Kristbjörg og var ýmist HF 177, ÁR 177 eða ÍS 177. 

Árið 2013 fékk hann nafnið Tjaldanes GK 525 og var það síðasta nafnið sem báturinn bar áður en hann fór utan til niðurrifs. Það var árið 2017.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd