Fúsi SH 162

1849. Fúsi SH 162 ex Fúsi SH 161. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004.

Fúsi SH 162 kemur hér að landi í Grindavík vorið 2004 en síðar sama ár fékk báturinn nafnið Grímsnes GK 555.

Upphaflega hét báturinn Neptúnus NS 8 og var smíðaður árið 1978 í Vélsmiðju Seyðisfjarðar.

Neptúnus var gerður út frá Seyðisfirði til ársins 1991 er hann var seldur vestur á Snæfellsnes. Þar fékk hann nafnið Fúsi SH 162 með heimahöfn á Rifi.

Árið 2004 fær hann nafnið Grímsnes GK 555 en báturinn stoppað stutt á Suðurnesjunum og var kominn aftur á Snæfellsnesið ári síðar.

Þar fékk hann nafnið Sproti SH 51 með heimahöfn í Grundarfirði.

Það var svo árið 2010 sem hann fær nafnið Dýrfiskur ÍS 96 með heimahöfn á Þingeyri en hann er þjónustubátur við fiskeldi þar vestra.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

2 athugasemdir á “Fúsi SH 162

Skildu eftir svar við Orri Hætta við svar