2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir í dag af Jökli ÞH 299 þar sem hann var að draga netin í Reykjanesröstinni. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans er 44 metrar og breiddin 10 metrar. … Halda áfram að lesa Jökull að draga netin
Day: 23. mars, 2025
Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir
2350. Árni Friðriksson HF 200 - 3045. Þórunn Þórðardóttir HF 300. Ljósmynd Magnús Jónsson 2025. Maggi Jóns tók þessa mynd fyrir stundu þegar hið nýja hafrannsóknarskip Íslendinga, Þórunn Þórðardóttir HF 300, kom úr sínum fyrsta leiðangri. Fyrir var við bryggju í Hafnarfirði hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson HF 200 sem upphaflega var RE 200 og var smíðaður … Halda áfram að lesa Árni Friðriksson og Þórunn Þórðardóttir
Halldór afi KE 222
1546. Halldór afi GK 222 ex Halldór afi GK 222. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Á þessum myndum sem Jón Steinar tók í gær má sjá Halldór afa KE 222 á veiðislóðinni út af Straumsvík þar sem hann var við netaveiðar. Báturinn var smíðaður árið 1979 í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf. á Skagaströnd. Halldór afi … Halda áfram að lesa Halldór afi KE 222
Vestmannaey VE 54 landaði í Grindavík í gær
2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Vestmannaey VE 54 kom til Grindavíkur í gær og landaði fullfermi sem fór til vinnslu hjá Vísi. Vestmannaey er í eigu Bergs- Hugins hf dótturfélags Síldarvinnslunnar og var smíðuð í skipasmíðastöð Vard í Aukra í Noregi. 2954. Vestmannaey VE 54. Ljósmyndir Jón Steinar Sæmundsson 2025. Með … Halda áfram að lesa Vestmannaey VE 54 landaði í Grindavík í gær



