3011. V/S Freyja ex GH Endurance. Ljósmynd Jón Steinar 2025. Jón Steinar tók þessa mynd af varðskipinu Freyju í gær þar sem skipið lá fyrir akkeri fyrir mynni Hjaltadals inni á Skagafirði. Varðskipið Freyja er 86 metra langt og 20 metra breitt, smíðað árið 2010 og var keypt til Íslands árið 2021. Með því að smella … Halda áfram að lesa Varðskipið Freyja á Skagafirði
Month: febrúar 2025
Hafrún HU að veiðum á Húnaflóa
530. Hafrún HU 12 ex Bliki HF 72. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar Sæmundsson tók þessar myndir í gær en þær sýna dragnótabátinn hafrúnu HU 12 við dragnótaveiðar á Húnaflóa. Hafrún hét upphaflega Gjafar VE 300 og var smíðuð í Zaandam í Hollandi árið 1956. Árið 1960 fékk báturinn Hafrúnarnafnið og varð GK … Halda áfram að lesa Hafrún HU að veiðum á Húnaflóa
Dagrún að draga netin
2617. Dagrún HU 121 ex Bergvík KE 22. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessa myndasyrpur í dag af netabátnum Dagrúnu HU 121 þar sem hún var að draga netin úti fyrir Skagaströnd. Dagrún hét upphaflega Daðey GK 777 frá Grindavík og var yfirbyggður línubátur smíðaður hjá Mótun ehf í Njarðvík árið 2004. … Halda áfram að lesa Dagrún að draga netin
Guðborg NS 336
2358. Guðborg NS 336 ex Von SK 25. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Guðborg NS 336 frá Vopnafirði kom til Húsavíkur í dag og voru þessar myndir teknar þá. Guðborg hét upphaflega Garri BA 90 og var af gerðinni Víkingur 800 smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak árið 1999. Heimahöfn Tálknafjörður. Árið 2003 var Garri BA 900 um … Halda áfram að lesa Guðborg NS 336
Snæfell EA 310
2212. Snæfell EA 310 ex Akraberg FD 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Þessi mynd sem nú birtist var tekin í ágústmánuði árið 2022 þegar frystitogarinn Snæfell EA 310 kom til heimahafnar á Akureyri. Samherji hf. hafði fyrr á árinu keypt skipið frá Færeyjum og var það að koma úr slipp í Danmörku. Um komu skipsins … Halda áfram að lesa Snæfell EA 310
Jökull ÞH 299
2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Jökull ÞH 299 kom til löndunar á Húsavík nú undir kvöld en báturinn er á þorskanetum. Jökull hefur verið að veiðum í Breiðafirði að undanförnu og landað á Grundarfirði. Jökull var smíðaður í Noregi árið 1996 og er 962 GT að stærð. Lengd hans … Halda áfram að lesa Jökull ÞH 299
Haförn ÞH 26
1979. Haförn ÞH 26 ex Þorsteinn BA 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Dragnótabáturinn Haförn ÞH 26 kemur hér að landi á Húsavík síðdegis í dag. Það er Uggi fiskverkun ehf. sem á Haförninn og gerir út en fyrirtækið keypti bátinn árið 2010. Haförn ÞH 26 hét áður Þorsteinn BA 1 frá Patreksfirði og smíðaður var í … Halda áfram að lesa Haförn ÞH 26
Örkin kom í dag
1420. Örkin ex Keilir SI 145. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Örkin frá Siglufirði kom til Húsavíkur í hádeginu þeirra erinda að fara í slipp en báturinn er í eigu Gunnars Júlíussonar á Siglufirði Það er gaman að geta þess að eftir c.a mánuð eru 50 ár síðan báturinn kom í fyrsta skipti til hafnar á Húsavík … Halda áfram að lesa Örkin kom í dag
Hvannaberg ÓF 72
2206. Hvannaberg ÓF 72 ex Baldur EA 108. Ljósmynd Olgeir Sigurðsson. Hvannaberg ÓF 72 er hér a toginu á rækjumiðunum út af Norðurlandi um árið en Sæberg hf., síðar Þormóður rammi-Sæberg, gerði hann út. Hvannaberg, sem var 475 brl. að stærð, hét áður Baldur EA 108 en Snorri Snorrason útgerðarmaður á Dalvík keypti togarann frá … Halda áfram að lesa Hvannaberg ÓF 72
Stokksnes RE 123
7. Stokksnes RE 123 ex Stokksnes VE 700. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2000. Stokksnes RE 123 hét upphaflega Anna SI 117 frá Siglufirði og var smíðað í Zaandam í Hollandi árið 1960. Sögu bátsins má lesa hér en hann var seldur úr landi árið 2003. Nöfnin sem hann bar voru Anna SI 117, Anna GK 79, … Halda áfram að lesa Stokksnes RE 123









