IMO 9126900. Wilson Brest ex Northen Lessnes. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Brest kom til Húsavíkur í kvöld með saltfarm fyrir GPG Seafood. Skipið var smíðað árið 1995 í Slóvakíu og siglir undir flaggi Barbados með heimahöfn í Bridgetown. Það er 87,9 metra langt, 12,8 metra breitt og mælist 2,446 GT að stærð. IMO … Halda áfram að lesa Wilson Brest kom með salt
Year: 2024
Þá er Tindur allur
847. Tindur SH 179 ex Friðrik Bergmann SH 240. Ljósmynd Alfons Finnsson. Þá er Tindur SH 179 allur eins og sjá má myndinni sem Fonsi sendi mér í morgun. Eftir að Tindur SH 179 var afskráður síðla árs 1994 var hann tekinn á land við Ólafsvík þar sem hann hefur staðið uppi þar til nú. … Halda áfram að lesa Þá er Tindur allur
Finnbjörn ÍS 37
1181. Finnbjörn ÍS 37 ex Finnbjörn ÍS 23. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Bátalónsbáturinn Finnbjörn ÍS 37 liggur hér í höfninn á Ísafirði sem lengstum var hans heimahöfn. Smíðaður árið 1971 og hét upphaflega Konráð RE 37 en sama ár var hann kominn til Ísafjarðar og varð ÍS 23. Árið 1973 verður báturinn ÍS 37 og var … Halda áfram að lesa Finnbjörn ÍS 37
Hav Norlandia kom með áburð
IMO 9280706. Hav Norlandia ex Ostenau. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Færeyska flutningaskipið Hav Norlandia kom til Húsavíkur um miðjan daginn með áburðarfarm. Skipið var smíðað í Slóvakíu árið 2005 og hét áður Ostenau. Það er 87,85 metrar að lengd og breidd þess er 12,8 metrar. Það mælist 2,461 GT að stærð. Það siglir eins og … Halda áfram að lesa Hav Norlandia kom með áburð
Jóhanna Margrét SI 11
163. Jóhanna Margrét SI 11 ex Jóhanna Margrét HU 130. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Jóhanna Margrét SI 11 hét upphaflega Vinur ÍS 102 og var smíðaður fyrir Hnífsdælinga í Þýskalandi árið 1960. 101 brl. að stærð í upphafi en síðar mældur niður í 88 brl. en það var gert árið 1974. Vinur fékk nafnið Páll Pálsson … Halda áfram að lesa Jóhanna Margrét SI 11
Albert Ólafsson KE 39
256. Albert Ólafsson KE 39 ex Ólafur Friðbertsson ÍS 34. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Albert Ólafsson KE 39 liggur hér í Keflavíkurhöfn um árið en upphaflega hét báturinn Ólafur Friðbertsson ÍS 34 frá Súgandafirði, smíðaður Flekkefjord í Noregi 1964. Báturinn var keyptur til Keflavíkur árið 1982 þar sem hann fékk nafnið Albert Ólafsson KE 39. Albert Ólafsson … Halda áfram að lesa Albert Ólafsson KE 39
Aron ÞH 105
1144. Aron ÞH 105. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Aron ÞH 105 frá Húsavík er hér á heimstími sýnist mér, siglir inn með Tjörnesi eftir að hafa verið að veiðum með þorskanót. Aron ÞH 105, sem var 11 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Guðmund A. Hólmgeirsson í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1971. Báturinn var á Húsavík … Halda áfram að lesa Aron ÞH 105
Valur SI 4
1083. Valur SI 4 ex Valur SI 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Valur SI 4 var 9 brl. að stærð og smíðaður í Bátalóni í Hafnafirði árið 1969. Hann var upphaflega GK 57. Báturinn hét Valur alla tíð en bar eftirfarandi einkennisstafi og númer: 1969 Valur GK 57, 1972 Valur SH 57, 1977 Valur SH 102, … Halda áfram að lesa Valur SI 4
Guðrún Hlín BA 122
1576. Guðrún Hlín BA 122 ex Hrafnseyri ÍS 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjutogarinn Guðrún Hlín BA 122 heldur hér til veiða frá Reykjavík en hún var með heimahöfn á Patreksfirði. Háanes hf. á Patreksfirði keypti togarann, sem þá hét Hrafnseyri ÍS 10, árið 1998 og fékk hún þá nafnið Guðrún Hlín BA122. Upphaflega Kolbeinsey ÞH … Halda áfram að lesa Guðrún Hlín BA 122
Arnarnúpur ÞH 272
1556. Arnarnúpur ÞH 272 ex Drangur SH 511. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Arnarnúpur ÞH 272 heldur hér til veiða frá Húsavík en hann var gerður út af Jökli hf. á Raufarhöfn. Upphaflega Sölvi Bjarnason BA 65, smíðaður á Akranesi fyrir Tálkna hf. á Tálknafirði, afhentur í marsmánuði 1980. Sölvi Bjarnason, sem var 405 brl. að stærð, … Halda áfram að lesa Arnarnúpur ÞH 272









