2986. Erling KE 140 ex Mars RE 270. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Netabáturinn Erling KE 140 siglir hér í dag inn Stakksfjörðinn og til hafnar í Keflavík. Saltver ehf. á Erling og gerir út en fyrirtækið keypti bátinn í lok árs 2022 af Útgerðarfélagi Reykjavíkur. Erling er 34 metrar að lengd, breiddin er 9 metrar … Halda áfram að lesa Erling KE 140
Year: 2024
Viðey RE 50
2895. Viðey RE 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skuttogarinn Viðey RE 50 kom til hafnar í Reykjavík í gærkveldi og voru þessar myndir teknar þá. Brim hf. í Reykjavík gerir togarann út en hann er eitt þriggja systurskipa sem HB Grandi lét smíða í Céliktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul. Hin voru Engey RE 91 og Akurey … Halda áfram að lesa Viðey RE 50
Wilson Fedje kom með áburð
IMO 9491757. Wilson Fedje. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Fedje var á Húsavík í gær þar sem skipað var upp áburðarfarmi. Skipið siglir undir fána Barbados og er heimahöfn þess í Bridgetown. Winston Fedje, sem var smíðað í Kína árið 2012, 90 metrar að lengd, breidd þess er 15,2 metrar og það mælist 2,999 … Halda áfram að lesa Wilson Fedje kom með áburð
Baldvin Njálsson GK 400
2992. Baldvin Njálsson GK 400. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 kom til olíutöku í Örfirisey í kvöld og voru þessar myndir teknar þá. Baldvin Njálsson GK 400 var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon Vigo S.A í Vigo og kom í stað eldra skips sem selt var til Rússlands. Hann kom til landsins í … Halda áfram að lesa Baldvin Njálsson GK 400
Seir M-104-H kom til Reykjavíkur í dag
IMO 9827176. Seir M-104-H. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norski línuveiðarinn Seir M-104-H frá Álasundi kom til hafnar í Reykjavík nú síðdegis. Í Reykjavík fara fram áhafnaskipti en skipið hefur verið að veiðum við Grænland. Seir var smíðaður árið 2018 og mælist 1,911 Gt að stærð. Lengd skispisn er 53.1 metrar og breidd þess 15,4 metrar. … Halda áfram að lesa Seir M-104-H kom til Reykjavíkur í dag
Kristín ÞH 55
7526. Kristín ÞH 55 ex Kristín HU 219. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Strandveiðibáturinn Kristín ÞH 55 kom til Húsavíkur í dag en veiðar mega hefjast 2. maí nk. Kristín er gerð út af Möðruvöllum ehf. á Akureyri en er með heimahöfn á Raufarhöfn þaðan sem hún hefur jafnan verið gerð út. Hér má lesa nánar … Halda áfram að lesa Kristín ÞH 55
Bjarni Ásmundar RE 12
978. Bjarni Ásmundar RE 12 ex Bjarni Ásmundar ÞH 320. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Bjarni Ásmundar RE 12 á toginu en það var Bás hf. í Reykjavík sem gerði hann út. Upphaflega Siglfirðingur SI 150 sem smíðaður var fyrir Siglfirðing hf. á Siglufirði árið 1964 í Ulsteinsvik í Noregi. Tímamótaskip en hann var fysrta íslenska … Halda áfram að lesa Bjarni Ásmundar RE 12
Guðmundur Kristinn SU 404
1000. Guðmundur Kristinn SU 404 ex Flosi ÍS 15. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Guðmundur Kristinn SU 404 var gerður út frá Fáskrúðsfirði um árabil en eigandi hans var Pólarsíld hf. þar í bæ. Guðmundur Kristinn SU 404 hét áður Flosi ÍS 15 en upphaflega hét hann Seley SU 10 og var frá Eskifirði. Smíðaður í Flekkefjørd … Halda áfram að lesa Guðmundur Kristinn SU 404
Seifur fór með Treville í togi til Akureyrar
IMO 9815331. Treville. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hafnsögubáturinn Seifur frá Akureyri kom til Húsavíkur snemma í morgun þeirra erinda að sækja hollenska flutningaskipið Treville. Treville hefur legið við Norðurgarðinn í Húsavíkurhöfn í tæpar tvær vikur eða allt frá því varðskipið Freyja kom með það vélarvana í togi til Húsavíkur að kveldi 16. apríl sl. Frekari … Halda áfram að lesa Seifur fór með Treville í togi til Akureyrar
Wilson Hirthsals
IMO 9240251. Wilson Hirthsals ex Tejo Alges. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Hirthsals kom til Húsavíkur í morgun en skipið er með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið siglir undir fána Barbados og er heimahöfn þess í Bridgetown. Winston Hirthsals var smíðað í Búlgaríu árið 2001 og bar áður nöfnin Parma og Tejo … Halda áfram að lesa Wilson Hirthsals









