IMO 9156101. Wilson Calais ex Steffen Sibum. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Flutningaskipið Wilson Calais kom til Húsvíkur í gærkveldi með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið, sem var smíðað í Serbíu árið 2001, er tæplega 100 metra langt og breidd þess er 12,80 metrar. Það mælist 2,994 GT að stærð og siglir undir fána Barbadoseyja með … Halda áfram að lesa Wilson Calais við Bökugarðinn
Year: 2024
Bjóðin tekin
Bjóðin tekin um borð. Ljósmynd SRR. Hér verið að taka línubjóðin um borð í Andvara ÞH 81 en myndin var tekin um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Bjóðabíllinn Þ 335 og hverjir kallarnir eru ætla ég ekki að tjá mig um. Um Andvara ÞH 81 má lesa hér en báturinn var smíðaður á Akureyri árið … Halda áfram að lesa Bjóðin tekin
Kristbjörg VE 70
136. Kristbjörg VE 70 ex Guðrún Magnúsdóttir VE 69. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Kristbjörg VE 70 kemur til hafnar í Vestmannaeyjum en þaðan var báturinn gerður út alla tíð. Kristbjörg var smíðuð í Noregi árið 1960 fyrir Svein Hjörleifsson í Vestmannaeyjum. Íslensk skip IV bindi: Smíðuð í Noregi 1960, stál 113 brl. 550 hestafla Völund diselvél. … Halda áfram að lesa Kristbjörg VE 70
Afi Toni EA 127
5493. Afi Toni EA 127 ex Árni ÞH 127. Ljósmynd Haukur Sigtryggur 2024. Strandveiðibáturinn Afi Toni EA 127 kemur hér að landi á Dalvík fyrir skömmu en hann er með heimahöfn á Akureyri. Afi Toni hét áður Árni ÞH 127 en Bragi Sigurðsson gerði hann út í árafjöld frá Húsavík. Um Árna ÞH 127 var skrifað á … Halda áfram að lesa Afi Toni EA 127
Freyja ÞH 125
421. Freyja ÞH 125 ex Freyja KE 42. Ljósmynd SRR. Freyja ÞH 125 liggur hérvið bryggju á Húsavík um árið og það er greinilega verið að kíkja á eitthvað neðan sjólínu að aftan. Freyja ÞH 125 var smíðuð í Danmörku árið 1930 en um bátinn má lesa hér. Báturinn var gerður út frá Húsavík á … Halda áfram að lesa Freyja ÞH 125
Auðunn GK 27
21. Auðunn GK 21. Ljósmynd SRR. Auðunn GK 21 er hér í Húsavíkurhöfn um árið en framköllunarár myndarinnar var 1962. Auðunn var smíðaður í Noregi árið 1959 fyrir Hlutafélagið Ása h/f í Hafnarfirði og kom til heimahafnar í febráur 1960. Auðunn var 164 brl. að stærð en báturinn var síðar lengdur og mældist eftir það … Halda áfram að lesa Auðunn GK 27
Steinn GK 65
972. Steinn GK 65 ex Kristín GK 457. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson. Steinn GK 65 var smíðaður í Boizenburg í Austur-Þýskalandi 1965 og hét upphaflega Þorsteinn RE 303. Síðar bar báturinn nöfnin Þorsteinn RE, Hafrún ÍS, Hafrún BA, Pétur Ingi KE, Stjörnutindur SU, Lýtingur NS, Vigdís BA, Haraldur EA, Ásgeir Guðmundsson SF og Atlanúpur ÞH þangað til … Halda áfram að lesa Steinn GK 65
Moby Dick
1453. Moby Dick ex Gerpir NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kemur hér til hafnar á Húsavík sl. sunnudag eftir ferð út á Skjálfandann. Moby Dick hét upphaflega Aldan RE 327 og var smíðaður hjá Básum hf. í Hafnarfirði árið 1976. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Moby Dick
Sævar ÞH 3
847. Sævar ÞH 3. Ljósmynd úr einkasafni. Flott þessi mynd af Sævari ÞH 3 frá Grenivík sem smíðaður var hjá Skipasmíðastöð KEA árið 1962. Eigendur voru bræðurnir Brynjar og Sævar Sigurðssyni á Grenivík. Árið 1972 var báturinn seldur yfir fjörðinn til Dalvíkur þar sem fékk hann nafnið Vinur EA 80. Vinur var seldur til Siglufjarðar … Halda áfram að lesa Sævar ÞH 3
Sæborg ÞH 55
823. Sæborg ÞH 55 ex Sæborg TH 55. Ljósmynd úr einkasafni. Hér er ein gömul og skemmtileg mynd sem tekin var á Húsavík upp ú 1960. Sæborg ÞH 55 er að leggjast að bryggju og fjær er frambyggð trilla sem mér sýnist standa EA á. Bar myndina undir einn fróðan mann og hann minnti að … Halda áfram að lesa Sæborg ÞH 55









