Systurskip við slippkantinn

1586. Kolbeinsey ÞH 10 - 1598. Örvar HU 21. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggja systurskip við slippkantinn á Akureyri um árið og þá búið að selja annað þeirra úr landi. Kolbeinsey ÞH 10 og Örvar HU 21 sem bæði voru smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri, Kolbeinsey afhent árið 1981 og Örvar 1982. Örvar var seldur … Halda áfram að lesa Systurskip við slippkantinn

Trillur í fjörunni

Trillur í fjörunni framundan hafnarstéttinni á Húsavík. Ljósmynd SRR. Hér gefur að líta trillur í fjörunni framundan hafnarstéttinni á Húsavík. Myndin var tekin um miðjan sjöunda áratug síðustu aldar. Sú stærsta er ÞH 98 sem segir að þar sé um að ræða Ásgeir ÞH 98 sem síðar bar nöfnin Vilborg ÞH 98, Árný ÞH 98, … Halda áfram að lesa Trillur í fjörunni

Við Húsavíkurhöfn 17. júní

Við Húsavíkurhöfn 17. júní 2024. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var fallegt og kyrrt veður við Húsavíkurhöfn að kveldi Þjóðahátíðardags og bátarnir spegluðust í haffletinu þar sem þeir lágu við flotbryggjurnar. Á myndinni eru Faldur, Sylvía og Bjössi Sör. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn 17. júní

Fjölnir seldur úr landi

1136. Fjölnir GK 157 ex Ocean Breeze. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Línuskipið Fjölnir GK 157 hefur verið seldur til Noregs og verður afhentur nýjum eigendum á næstu dögum. Báturinn hefur legið í Reykjavíkurhöfn undanfarna mánuði og var myndin hér að ofan tekin í byrjun maímánaðar. Fjölnir var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt … Halda áfram að lesa Fjölnir seldur úr landi

Silver Wind á Húsavík

IMO 8903935. Silver Wind. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Silver Wind kom til Húsavíkur að morgni þjóðhátíðardags og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem var smíðað á Ítalíu árið 1995, er 162 metrar að lengd, 26 metra breitt og mælist 17.235 GT að stærð. Það siglir undir fána Bahama með heimahöfn í Nassau. IMO 8903935. Silver … Halda áfram að lesa Silver Wind á Húsavík

Merweborg kom í morgun

IMO 9142552. Merweborg ex Msc Bothnia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Merweborg kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið er 136 metrar að lengd, breidd þess er 16,5 metrar og það mælist 6,540 GT að stærð. Merweborg var smíðað í Hollandi árið 1997 og er með heimahöfn í Delfzijl. … Halda áfram að lesa Merweborg kom í morgun