1315. Eyrún ÁR 66 ex Eyrún GK 157.Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Eyrún ÁR 66 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn um árið en þaðan gerði Erlingur Ævarr Jónsson hana út. Báturinn var smíðaður í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Hríseyinga og hét Eyrún EA 157. Nýsmíði nr. 44 hjá stöðinni og var báturinn afhentur 11. júlí árið … Halda áfram að lesa Eyrún ÁR 66
Year: 2024
Þrír bláir
Dragnótabátar í Húsavíkurhöfn. Ljósmynd Hafþór Hreiðasson 2024. Blár er allsráðandi litur í íslenska bátaflotanum og hér sjást þrír slíkir í Húsavíkurhöfn sl. sunndag. Hafborgin liggur utan á Þvergarðinum og Geir fyrir innan en Bárður kemur að. Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn. By clicking on the images … Halda áfram að lesa Þrír bláir
Háey I og Hafborg við bryggju
2995. Háey I ÞH 295 - 2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hér gefur að líta línubátinn Háey I ÞH 295 og neta- og dragnótabátinn Hafborgu EA 152 þar sem þeir lágu við Suðurgarðinn í Húsavíkurhöfn í gærkveldi. Háey I er gerð út af GPG Seafood ehf. á Húsavík en er með heimahöfn … Halda áfram að lesa Háey I og Hafborg við bryggju
Nýtt kvótaár hafið
Landað úr Haferni ÞH 26 á Húsavík í dag. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Nýtt kvótaár hófst í dag og einnig hefjast 1. september dragnótaveiðar innan línu á Skjálfandaflóa. Einn þeirra dragnótabáta sem réru í dag á Skjálfanda var Haförn ÞH 26 og á myndinni er Guðmundur Vilhjálmsson vélstjóri við löndun úr bátnum. Með því að smella … Halda áfram að lesa Nýtt kvótaár hafið
Snæfari HF 186
1615. Snæfari HF 186 ex Keilir GK 37. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Snæfari HF 186 kom inn í íslenska fiskiskipaflotann vorið 1982 og hét þá Einar Ben BA 377. Rúmu ari síðar fékk hann nafnið Keilir GK 37. Skipið var keypt frá Englandi þar sem það bar nafnið Boston Sea Sprite. Það var smíðað árið 1972 … Halda áfram að lesa Snæfari HF 186
Bárður SH 81
2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Það var farið að skyggja þegar Bárður SH 81 frá Ólafsvík kom til hafnar á Húsavík á áttunda tímanum í kvöld. Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. en að því fyrirtæki stendur Pétur Pétursson skipstjóri og útgerðarmaður á Arnarstapa á Snæfellsnesi. Smíði bátsins fór … Halda áfram að lesa Bárður SH 81
Vestri BA 63
3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Rækjutogarinn Vestri BA 63 frá Patreksfirði kom til hafnar á Húsavík í dag og hafði hér stutta viðdvöl. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti skipið frá Noregi og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar þann 9. apríl árið 2022. Í Noregi hét togarinn Tobis … Halda áfram að lesa Vestri BA 63
Örfirisey RE 4 seld úr landi
2170.Örfirisey RE 4 ex Polarborg 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Örfirisey RE 4 kemur hér til hafnar í Reykjavík í marsmánuði árið 201. Eins og komið hefur fram í fréttum hefur Brim komist að samkomulagi um sölu á togaranum til Suður Afríku. Örfirisey var smíðuð árið 1988 í Kristiansund í Noregi fyrir Færeyinga og hét … Halda áfram að lesa Örfirisey RE 4 seld úr landi
Sir David Attenborough
IMO 9798222. Sir David Attenborough. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024. Breska rannsóknarskipið Sir David Attenborough kom fyrr í kvöld upp að Keflavík og tók Jón Steinar þessar myndir þá Hverra erinda skipið var hafði Jón ekki vitneskju um en gæti hafa verið að sækja eða skila af sér mannskap. Um skipið skrifaði Jón Steinar á … Halda áfram að lesa Sir David Attenborough
Varnebank kom í morgun
IMO 9213739. Varnebank. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Varnebank kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm til PCC á Bakka. Varnebank, sem er með heimahöfn í Delfzijl, var smíðað í Hollandi árið 2002. Skipið er 6,130 GT að stærð, lengd þess er 132 metrar og breiddin 16 metrar. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Varnebank kom í morgun









