Cape Race á Húsavík

IMO 5402198. Cape Race. Ljósmynd Aðalsteinn Árni Baldursson 2024. Leiðangursskipið Cape Race kom til Húsavíkur í vikunni og tók Aðalsteinn Árni Baldursson þessa mynd. Cape Race var smíðaður sem úthafstogari 1963 í Kanada. Stærð skipsins er 323 GT og lengd þess 38 metrar. Breiddin átta metrar. Cape Race siglir undir flaggi Cook Islands. Hér má … Halda áfram að lesa Cape Race á Húsavík

Franziska kom í Krossanes á dögunum

IMO 9535618. Franziska ex Onego Maas. Ljósmynd Haukur Sigtryggur Valdimarsson 2024. Flutningaskipið Franziska kom að landi við Krossanes á dögunum og tók Haukur Valdimar þessa mynd af því. Skipið var smíðað í Kína árið 2011 og er 145,6 metrar að lengd. Breidd þess er 18,25 metrar og það mælist 8,059 GT að stærð. Franziska siglir … Halda áfram að lesa Franziska kom í Krossanes á dögunum

Ísleifur farinn

2388. Ísleifur VE 63 ex Ingunn AK 150. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Ísleifur VE 63 lagði síðdegis í gær upp í siglingu frá Vestmannaeyjum til Danmerkur, nánar tiltekið Esbjerg, þar sem skipið fer í niðurrif. Ísleifur hét upphaflega Ingunn AK 150 og var smíðaður fyrir HB á Akranes í Chile árið 2000. Vinnslustöðin hf. í Vestmannaeyjum … Halda áfram að lesa Ísleifur farinn

Hulda Björnsdóttir GK 11 afhent í dag

3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Þorbjörn hf. 2024. Það var stór dagur í skipasmíðastöðinni í Gijón á Spáni í dag þegar Hulda Björnsdóttir GK 11 var afhent Þorbirni hf. að viðstöddum fulltrúum Þorbjarnar og skipasmíðastöðvarinnar Astilleros Armon. Frá þessu segir á Fésbókarsíðu fyrirtækisins sem veitti góðfúslegt leyfi til að myndbirtingar hér. Þar segir jafnframt: … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 afhent í dag

Fiskibátar í Hondaribbia

Fiskibátar í höfninni í Hondaribbia sumarið 2014. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta nokkra fiskibáta í höfninni í Hondaribbia á Spáni en bærinn er við mynni Bidasoa árinnar, í Gipuzkoa, í Baskalandi á Spáni. Myndin var tekin sumarið 2014 er við dvöldum í Hendaye handan Irun árinnar, s.s í Frakklandi og gerðum okkur nokkrar … Halda áfram að lesa Fiskibátar í Hondaribbia

Sigurfari VE 138

1213. Sigurfari VE 138 ex Náttfari RE 75. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Sigurfari VE 138 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum um árið en hann hét upphaflega Heimaey VE 1. Báturinn var smíðaður árið 1972 í Slippstöðinn á Akureyri fyrir Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. og Sigurð Georgsson skipstjóra. Báturinn, sem upphaflega var 105 brl. að stærð, var … Halda áfram að lesa Sigurfari VE 138

Hólmsteinn GK 20

7789. Hólmsteinn GK 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Strandveiðibáturinn Hólmsteinn GK 20 kemur hér að landi í Sandgerði þann 2. maí sl. á fyrsta degi strandveiðatímabilsins 2024. Hólmsteinn, sem var smíðaður árið 1995, er gerður út af Austurlyngi ehf. með heimahöfn í Garði. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í … Halda áfram að lesa Hólmsteinn GK 20

Sigurbjörg ÁR 67 landaði í Eyjum

3018. Sigurbjörg ÁR 67. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2024. Sigurbjörg ÁR 67, nýjasta skip Ísfélagsins, landaði í fyrsta skiptið í Vestmannaeyjum í vikunni og tók Tryggvi Sigurðsson þessa mynd þegar hún hélt aftur til veiða í gær. Sigurbjörg var smíðuð hjá Celiktrans skipasmíðastöðinni í Istanbul í Tyrklandi og kom til landsins um miðjan júlímánuð. Skipið er … Halda áfram að lesa Sigurbjörg ÁR 67 landaði í Eyjum