Við Húsavíkurhöfn 17. júní

Við Húsavíkurhöfn 17. júní 2024. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Það var fallegt og kyrrt veður við Húsavíkurhöfn að kveldi Þjóðahátíðardags og bátarnir spegluðust í haffletinu þar sem þeir lágu við flotbryggjurnar. Á myndinni eru Faldur, Sylvía og Bjössi Sör. Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn. By clicking on … Halda áfram að lesa Við Húsavíkurhöfn 17. júní

Fjölnir seldur úr landi

1136. Fjölnir GK 157 ex Ocean Breeze. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Línuskipið Fjölnir GK 157 hefur verið seldur til Noregs og verður afhentur nýjum eigendum á næstu dögum. Báturinn hefur legið í Reykjavíkurhöfn undanfarna mánuði og var myndin hér að ofan tekin í byrjun maímánaðar. Fjölnir var smíðaður í Mandal í Noregi 1968 en keypt … Halda áfram að lesa Fjölnir seldur úr landi

Silver Wind á Húsavík

IMO 8903935. Silver Wind. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Silver Wind kom til Húsavíkur að morgni þjóðhátíðardags og lagðist að Bökugarðinum. Skipið, sem var smíðað á Ítalíu árið 1995, er 162 metrar að lengd, 26 metra breitt og mælist 17.235 GT að stærð. Það siglir undir fána Bahama með heimahöfn í Nassau. IMO 8903935. Silver … Halda áfram að lesa Silver Wind á Húsavík

Merweborg kom í morgun

IMO 9142552. Merweborg ex Msc Bothnia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hollenska flutningaskipið Merweborg kom til Húsavíkur í morgun með hráefnisfarm fyrir kísilver PCC á Bakka. Skipið er 136 metrar að lengd, breidd þess er 16,5 metrar og það mælist 6,540 GT að stærð. Merweborg var smíðað í Hollandi árið 1997 og er með heimahöfn í Delfzijl. … Halda áfram að lesa Merweborg kom í morgun

Hanseatic nature

IMO 9817133. Hanseatic nature. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Skemmtiferðaskipið Hanseatic nature var á Húsavík í dag en skipið lét úr höfn um kaffileytið. Skipið er eitt þriggja systurskipa smíðuð hjá VARD Group AS í Noregi. Hin eru Hanseatic spirit og Hanseatic inspiration sem kom hingað á dögunum. Skipin taka allt að 230 farþega. Hanseatic nature … Halda áfram að lesa Hanseatic nature

Björgvin EA 311 lagður af stað til Spánar

1937. Björgvin EA 311. Ljósmynd Haukur Sigtryggur Valdimarsson 2024. Börgvin EA 311 sigldi frá Dalvík í hinsta skipti dag en togarinn hefur, eins og áður hefur komið fram, verið seldur úr landi. Haukur Sigtryggur tók meðfylgjandi myndir í dag en þeir Hartmann Kristjánsson og Leifur Björnsson fyrrverandi skipverjar á Björgvin leystu landfestar hans. Ljósmyndir Haukur … Halda áfram að lesa Björgvin EA 311 lagður af stað til Spánar

Cuxhaven kom til Akureyrar í dag

IMO 9782778. Cuxhaven NC 100. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Það líður að sjö árum frá því við Haukur Sigtryggur tókum okkur far með Fanney EA 28 út á Eyjafjörð og til móts við Cuxhaven NC 100 sem þá var að koma í fyrsta skipti til Akureyrar. Það var í nóvember árið 2017 og ég hef … Halda áfram að lesa Cuxhaven kom til Akureyrar í dag

Garðar kemur að landi

260. Garðar ex Sveinbjörn Jakobsson SH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Norðursiglingarbáturinn Garðar kemur hér að landi eftir hvalaskoðunarferð út á Skjálfanda í dag. Garðar hét upphaflega og lengst af Sveinbjörn Jakobsson SH 10 frá Ólafsvík. Smíðaður fyrir Útgerðarfélagið Dverg hf. í Esbjerg í Danmörku árið 1964. Norðursigling ehf. á Húsavík keypti bátinn haustið 2006 og gerði … Halda áfram að lesa Garðar kemur að landi