Selma

Selma ex Njörður. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Þráinn Þráinsson siglir hér Selmu innan hafnar á Húsavík um árið og gott ef þetta er ekki Huginn Ágústsson bróðursonur hans sem situr út í stjór. Selma, sem er tæplega tveggja tonna súgbyrðingur úr furu og eik, var smíðuð árið 1954 af Jóhanni Sigvaldasyni bátasmið á Húsavík. Magnús Bjarnason … Halda áfram að lesa Selma

Sigurgeir Sigurðsson ÍS 533

1228. Sigurgeir Sigurðsson ÍS 533 ex Siggi gamli BA 214. Ljósmynd Hafþór Hreiððarsson. Sigurgeir Sigurðsson RE 533 liggur hér í Þorlákshafnarhöfn um árið en báturinn hét upphaflega Kolbeinn í Dal ÍS 82. Hann var smíðaður 1972 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd og var með heimahöfnin Súðavík. Báturinn, sem var 22 brl. að stærð, var … Halda áfram að lesa Sigurgeir Sigurðsson ÍS 533

Ásgeir ÞH 198

1790. Ásgeir ÞH 198 ex Kristján EA 178. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Ásgeir ÞH 198 hét upphaflega Kristján EA 178 og var smíðaður árið 1987 af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri. Eigandi Trausti Jóhannsson Akureyri. Árið 1997 keypti Þórður Ásgeirsson bátinn til Húsavíkur og nefndi Ásgeir ÞH 198. Báturinn var lengdur árið 2004 og … Halda áfram að lesa Ásgeir ÞH 198

Knútur RE 22

284. Knútur RE 22 ex Haförn GK 120. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Netabáturinn Knútur RE 22 kemur hér til hafnar í Þorlákshöfn á vetrarvertíð í lok síðustu aldar. Knútur hét upphaflega Anna ÓF 7, smíðuð fyrir Ólafsfirðinga í Slippstöðinni á Akureyri árið 1961. Báturinn, sem var 20 brl. að stærð, var seldur til Hafnarfjarðar árið 1984 … Halda áfram að lesa Knútur RE 22

Moby Dick kominn úr slipp

1453. Moby Dick ex Gerpir NK 111. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Hvalaskoðunarbáturinn Moby Dick kom til Húsavíkur nú undir kvöld en báturinn var í slipp á Akureyri. Þar var báturinn skveraður fyrir næstu vertíð sem hefst þann 1. apríl nk. en Sjóferðir Arnars ehf. keypti bátinn frá Norðfirði sl. sumar og hóf siglingar á Skjálfanda. … Halda áfram að lesa Moby Dick kominn úr slipp

Selfoss við Bökugarðinn

IMO 9433456. Selfoss ex Shopia. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024. Selfoss, skip Eimskipafélags Íslands hf. er á Húsavík í dag og liggur við Bökugarðinn. Selfoss er 700 gámaeininga skip, 130 metra langt, 21 metra breitt og 7,464 brúttótonn að stærð. Eimskip keypti skipið, sem smíðað var 2008, árið 2017 en það hét áður Sophia. Selfoss siglir undir færeyskum … Halda áfram að lesa Selfoss við Bökugarðinn